01.08.1913
Neðri deild: 24. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 651 í C-deild Alþingistíðinda. (459)

83. mál, síldarleifar

Flutningsm. (Pétur Jónsson):

Þetta frumvarp er fram komið hér vegna tilmæla frá nokktum varpeigendum við Eyjafjörð. Þeir hafa kvartað í bréfi, sem lagt hefir verið fram á lestrarsalinn, yfir því, að leifar frá síldarbræðsluverksmiðjunum við Eyjafjörð geri mikla brá á sjónum, og setjist hún svo á fiðrið á æðarfuglinum svo það rotni af og fuglinn drepist unnvörpum. Eg get alls ekki rengt, að það sé rétt frá þessu skýrt, og eg hefi frá óvilhöllum mönnum sannar sögur um það, að þessi brá er stundum svo mikil, að rák sést eftir endilöngum Eyjafirði. Þetta frumv. er bygt á sama grundvelli og lögin um hvalaleifar, sem banna hvalaleifar á þeim stöðum, þar sem þær geta grandað skepnum manna. Eg vona að hv. deild sjái, að þetta getur verið æðarfuglinum hættulegt, og að minsta kosti er hættulaust að samþykkja frumvarpið, því það fer ekki fram á neitt, sem ósanngjarnt er.

Eg geri ráð fyrir að frumvarpinu verði vísað til nefndar, og vil eg þá stinga upp á að Vísa því til fiskiveiðanefndarinnar.