01.08.1913
Neðri deild: 24. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 656 í C-deild Alþingistíðinda. (465)

83. mál, síldarleifar

Magnús Kristjánsson:

Eg get ekki neitað því, að háttv. flutningsm. (P. J.) bar undir mig, hvernig mér litist á þetta frumvarp. Hann hefir nú kannast við, að mér hafi þá þegar þótt það varhugavert, og álitið nauðsynlegt að breyta því nokkuð. Það er einmitt vegna þess að þessi breyting hefir ekki verið gerð í samræmi við mína tillögu, að eg verð að mæla eindregið móti frumvarpinu.

Háttv. 1. þm. Eyf. (St. St.) talaði um, að þetta frumv. kynni að verða hagur fyrir bændur, því að þeir mundu fá úrganginn fyrir lítið verð. Þetta er af ókunnugleika talað. Hér er um engar leifar eða úrgang að tala; alt er notað upp til agna, nema það, sem kann að síjast frá verksmiðjunum eða jafnvel veiðiskipunum sjálfum, sem ekki verður hjá komist. Ákvæði um þetta getur því verið hættulegt, þótt eg raunar óttist ekki, að því yrði beitt mjög stranglega.

Háttv. 1. þm. Eyf. (St. St.) sagði ennfremur, að það væri almæli, að ungar fyndust dauðir í hrönnum af þessari ástæðu. Aldrei hefi eg heyrt þetta, og er eg þó kunnugur, og þótt svo væri sagt, væri það ósatt. En því get eg ekki neitað, að fundist hafa örfáir ungar dauðir.

Eg Skal svo ekki fjölyrða um þetta. Nefnd álít eg óþarfa, en mun þó ekki setja mig á móti því, að frumvarpinu serði vísað til sjávarútsegsnefndarinnar. Eg vona að háttv. deild sjái, að hér er um óþarfa lagasetning að ræða, sem gæti orðið nauðsynlegum atvinnurekstri til ógagns og á því ekki að ná fram að ganga.