04.08.1913
Neðri deild: 25. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 671 í C-deild Alþingistíðinda. (481)
7. mál, fasteignaskattur
Eggert Pálsson:
Eins og háttv. þingdeildarmenn rekur minni til, greiddi eg atkvæði með því við 2. umr. þessa máls, að það fengi að ganga til 3. umr. En eg tók það jafnframt skýrt fram, að atkvæði mitt Væri þrátt fyrir það óbundið við 3. umr. Orsökin til þess að eg greiddi frumv. atkvæði við 2. umr. var sú, að það kom þá fram sú grunsemd, að gera ætti málið að flokksmáli frá hálfu vor heimastjórnarmanna, og einn ræðumaður lét jafnvel það sér um munn fara, að heimastjórnarþingmaðurinn, sem var einn í meiri hluta nefndarinnar, hefði verið sendur heim til þess að fá málið með því drepið. Slíkar aðdróttanir hér í þingsalnum eru, eins og allir sjá, ósæmilegar og með öllu ástæðulausar. Það hlýtur að liggja í augum uppi, að það er óeðlilegt og heimskulegt að gera þetta mál að flokksmáli. Eftir eðli sínu snertir það alla flokka jafnt og legst ekki þyngra á einn flokk öðrum fremur. Yfir höfuð ganga öll skattamál jafnt yfir alla flokka, og af því leiðir, að menn úr hvaða flokki sem er hljóta ýmist að vera með eða móti.
Hvað upptök málsins snertir, er heldur engin ástæða til að gera það að flokksmáli að mínu áliti. Þótt svo væri, að heimastjórnarflokkurinn vildi stjórnina feiga, sem ekki er ástæða til að ætla að svo stöddu, þá væri ekki rétt að beinast að stjórninni fyrir það þótt hún tæki þetta frumv. upp, enda mundi flokkurinn; ef hann sem slíkur endilega vildi fella stjórnina, hafa valið sér annan veg til þess.
Frumvarpið er eins og allir vita gamalt, samið af milliþinganefnd fyrir mörgum árum, og er ekki hægt að kenna stjórninni um ina fyrstu framkomu þess. En þegar þessar aðdróttanir um að heimastjórnarmenn legðust á móti frumvarpinu, af því að það væri stjórnarfrumvarp, komu fram við síðustu umræðu, þá vildi eg sýna fram á, hversu rakalaúsar þær væru, með því að greiða þá sjálfur atkvæði með frumvarpinu í fjærveru heimastjórnarnefndarmannsins. En það var þó ekki það eitt, sem réð atkvæði mínu, því að eg finn, að málið hefir við mikil rök að styðjast. Eg er alls ekki viss um, nema þjóðin fallist á að það sé rétt, sem liggur til grundvallar fyrir þessu máli, þegar hún hefir fengið að athuga það. En málið er ekki nógu vel athugað af þjóðarinnar hálfu enn, því að þó að það kæmi fram 1908 og hafi verið útbýtt meðal þjóðarinnar, þá er það víst, að stjórnin þá vildi ekki taka það upp og lagði það til hliðar, svo að þjóðin taldi það sama sem dautt mál, sem ekki þyrfti neinnar frekari athugunar við. Eg tel því að málið sé algerlega óundirbúið fyrir þjóðina nú. Að það kæmi fram á þessu þessu þingi, álít eg ekki nema gott, en eg vil ekki að það verði afgreitt nú sem lög, til þess að þjóðin fái tækifæri til að átta sig á því og segja sina skoðun á því. Og ef hún skyldi við athugun hallast að þeirri stefnu, sem liggur til grundvallar fyrir frumvarpinu, þá mun það verða tekið upp innan skamms og þá máske á næsta þingi, og þá ekki einungis þetta mál, heldur og inir aðrir dilkar þess, því að eg álít að ekki sé minni þörf á að útvega sýslusjóðum og sveitarsjóðum tekjur heldur en landssjóði. Auðvitað er ævinlega full þörf á tekjuauka fyrir landssjóðinn, en eg álít þörfina ekki svo afarbrýna nú sem stendur, að ástæða sé til að skella beri þessum nýju sköttum á þjóðina alveg fornspurða í viðbót við vörutollslögin, sem samþykt voru á síðasta þingi. Eg tel þjóðina alveg fornspurða í þessu máli, þó að frumv. hafi komið fram áður, þegar þeirri fram komu var svo háttað, að þjóðin gat ekki búist við að það yrði samþykt sem lög. Eg myndi samt sem áður greiða frumv. atkvæði einnig við þessa umræðu, ef eg hefði tryggingu fyrir því, að það færi samt sem áður ekki út úr þinginu í þetta skifti, því ekki mundi málið hafa nema gott af því að vera athugað sem bezt og þá einnig af háttv. Ed. En eins og sakir standa, mun eg þó nú greiða atkv. á móti frumv., og vona eg að menn lái mér það ekki. Því að ef frumv. yrði samþykt hér í deildinni, mætti búast við að það næði líka samþykki Ed. Þess vegna þori eg ekki að greiða því atkvæði að þessu sinni.
Eg skal að vísu játa það, að breyt. till. á þgskj. 260 bætir frumv. mikið í mínum augum, ef hún verður samþykt, en samt sem áður getur hún ekki haft þau áhrif, að eg þori að taka á mig ábyrgðina af því að frumv. verði nú samþykt sem lög að þjóðinni fornspurðri. Því verði frv. samþykt — er ekki svo hægt um vik að snúa til baka, þótt þjóðin verði óánægð með þessi lög. Því er ekki eins háttað og um einföld tolllög, sem alt af má aftur afnema. Það má segja um þetta frumv. eins og margt fleira, að geymt er ekki gleymt, og þess vegna er frumv. enginn aldurtill skapaður, þó að það verði ekki gert að lögum nú á þessu þingi.