04.08.1913
Neðri deild: 25. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 687 í C-deild Alþingistíðinda. (486)

7. mál, fasteignaskattur

Pétur Jónsson:

Eg varð of seinn til að biðja um orðið á undan háttv. 1. þm. Rvk. (L. H. B.), því að hans ræða var það, sem eg vildi fara um nokkrum orðum. (Lárus H. Bjarnason: »Ekki er mærin dauð, heldur sefur hún«. Eg rís upp aftur). Ekki í þessu máli. (Lárus H. Bjarnason: Þá í öðru).

Mér virðist háttv. þm. enn leggja of mikla áherzlu á það, að það sé verið að auka tekjur landssjóðs að óþörfu. Háttv. 1. þm. Rvk. (L. H. B.) gekk svo langt í þessu, að hann sagði, að hér væri verið að ofbjóða gjaldþoli landamanna, og fór jafnvel út í þá sálma, að þar gæti farið eins og um hest, sem væri ofboðið svo fyrir vagni, að hann yrði frá allri brúkun. Eg vil nú benda á það, að þegar talað er um skattamál, þá er ekki verið að tala um það, hve mikið gjald megi leggja á þjóðina. Það á við þegar verið er að ákveða útgjöldin í fjárlögunum. Það eru fjárlögin sem tiltaka þungann, en skatta og tolllög sem jafna honum á landsmenn til þess að þunginn komi sem jafnaðarlegst á gjaldþolið, en gjöldin þó svo löguð, að hægt verði að innheimta þau. Þess vegna er alt þetta tal um ofþjökun á gjaldþolinu með þessu frumv., ef ekki ryk í augu manna, þá samt ryk. Það er ekkert sérlegt aðalatriði í þessu máli, hver skatthæðin er, heldur hitt, hvort frumv. eru í sjálfu sér réttlátari og betri til frambúðar, en lög þau sem nú eru í gildi. Mér er óhætt að fullyrða, að milliþinganefndin í skattamálinu hefir íhugað þetta hetta betur en hv. 1. þm. Rvk. (L. H. B.) hefir átt kost á að gera síðan frumv. komu fram. Hann segist hafa verið búinn að steingleyma tillögum nefndarinnar; en þá getur hann ekki hafa verið búinn að íhuga þær teljandi áður; hann hefði eigi getað gleymt þeim alveg, ef hann hefði skilið þær þá og sett sig vel inn í þær.

Eg legg mikla áherzlu á það, hvort sem hv. þm. eru vel ánægðir með þessi frv., eða ekki, að þeir hleypi þeim til efri deildar — svo framarlega sem þeir eru ekki gersamlega andvígir stefnu þeirra — það flýtir fyrir betri skipun skattamálanna, ef efri deild ræðir málið líka. Því verður eigi neitað, að beinir skattar eru lítilsvirði, nú sem tekjugrein landssjóða á móts við aðrar tekjur. Og ofan á núverandi beina akatta verður ekki bygt til frambúðar. Það hefir oft komið til orða að afnema þá, t. d. lausafjárskattinn. En miklu nær virðist mér að laga þá. Og eg hygg að ekki verði horfið frá þeirri stefnu, því að beinir skattar eru, að dómi allra fróðra manna í þeim efnum, miklu réttlátari og fastari grundvöllur undir fjárhag hvers lands sem er. En ef háttv. deild fellir nú þessi frv., þá er eina og slegið fastri þeirri stefnu, að við viljum ekki hafa beina skatta, og næsta verkefnið ætti þá að vera að afnema þá beina skatta, sem við höfum. Eg verð þá að skilja meiri hlutann svo, sem hann vilji að teningunum sé kastað til fulls. En á þetta mál ætti þingið alt að líta áður en slíkum teningum er kastað.

Háttv. 1. þm. Rvk. (L. H. B.) tók dæmi til að sýna, hvernig þessir nýju skattar, sem nú eru til meðferðar, kæmi niður í samanburði við þá gömlu. Eg er nú ekki viðbúinn, að koma með dæmi á móti, þó eg byggi þau mörg til þegar eg var í Milliþinganefndinni. En samanburður hans var líka nokkuð skrítinn. Hann tekur kaupstaðarborgara, sem hefir tekjur rétt innan við 1000 kr. en þær eru skatfríar eftir núgildandi tekjuskattslögum. Svo lætur hann manninn hafa húseign, sem veðskuld hvílir á að 3/4 virðingarverðs, en eigandinn þó ekki skuldar nema að litlu leyti. Hann er því að óeðlilegum hætti að mestu laus við húsaskatt. Loks á hann lóð, sem nú er skattfrí að lögum; þar er einhver réttlátasti skattstofn, sem til er. Það er, nú skiljanlegt, að það þyngi allmjög á þessum manni með inum nýju skattbreytingum; því það er einmitt tilgangurinn að þær nái til þess, sem nú er ófyrirsynju skattfrítt að mestu eða öllu.

Viðvíkjandi dæminu, sem háttv. þm. tók af sveitabóndanum, þá hygg eg, að eg hafi meiri kunnugleika á að dæma þar um en hann. Eg veit með vissu, að bændum er ekki íþyngt, einkum þegar tillit er tekið til þess, að auk ábúðar og lausafjárakatts, losna þeir bæði við fasteignar og lausafjártíund. Og þótt okkur hefði að einhverju litlu leyti verið íþyngt, þá var ekki sakast um það, það er einmitt jafnhliða tilgangur beggja skattanna til samans að hafa dálitinn tekjuauka. Og það er ekki rétt, og enginn sómi fyrir okkur bændur, að vera að losa okkur undan því, að taka okkar part af hækkuninni. Það er aðgætandi, að núverandi beinir skattar til landssjóða nema ekki eins miklu og tillagið til Búnaðarfélags Íslands. En hvað sem þessu liður, þá er dæmið rangt sem þingm. tók. Hækkunin getur ekki numið svona miklu, því þessi litla hækkun, sem fæst með fasteignarskatti og eignarkatti, kemur meira niður á húseignum, en einkum þó á lóðum, sem hingað til hafa verið skattfríar. Nei, það mætti með miklu meiri sanni segja, að landbændum væri hlíft með þessum skattabreytingum.