04.08.1913
Neðri deild: 25. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 699 í C-deild Alþingistíðinda. (495)
7. mál, fasteignaskattur
Ráðherrann (H. H.):
Háttv. 1. þm. S.-MúI. (J. Ól.) benti til mín fyrirspurn . um, hvort eg vildi gangast fyrir að veittar væru 100 þús. kr. til Landsbankans. Býst eg við að hann hafi eigi verið að mælast til hrossakaupa í þessu máli, heldur að eins viljað seðja forvitni sína.
Get eg sagt honum, að eg álít þessi útgjöld langtum síður varhugaverð, en það sem farið var fram á um daginn, að landssjóður gengi í ábyrgð fyrir Landshankann.
Hvað viðkemur Sambandsflokknum, get eg frætt háttv. 1. þm. S.-Múl, um, að þar hefir þetta mál alls ekki komið til tals. En eg fyrir mitt leyti álít ekki ráðlegt að stofna landssjóði í stóran tekjuhalla út af Landsbankanum.