05.07.1913
Neðri deild: 4. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 49 í C-deild Alþingistíðinda. (51)

13. mál, vörutollur

Magnús Kristjánsson:

Eg ætla aðeins að gera örstutta athugasemd við ummæli háttv. 1. þm. Rvk. (L. H. B.). Hann hélt eg hefði verið að ámæla stjórninni fyrir frv. Eg veit ekki, hvernig honum hefir getað skilist svo. Eg sagði lögin og átti við þau, annars hefði eg sagt frumvarpið.

En úr því að mér var gefið tilefni til að standa upp, get eg nefnt fleira en eg gerði áðan, sem þyrfti að færast til í flokkunum, t. d. sjómannafatnað alls konar og sjóstígvél. Vörutollurinn kemur alt of þungt niður á þessari vöru og er nauðsynlegt að það verði lagfært.