04.08.1913
Neðri deild: 25. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 707 í C-deild Alþingistíðinda. (518)
86. mál, aðflutningsbann á áfengi
Flutningsm. (Lárus H. Bjarnason):
Eg skal vera stuttorður. Br.till. á þgskj. 229 var orðuð við flutning þessa máls hér í deildinni, og er hún sjálfsögð bót á frumv. Þá eru komnar fram aðrar breyt.till. á þgskj. 235 og 261, en það er raunar sama tillagan og miðar að því að fella burtu miðhluta 1. greinar.
Eg gat þess við 1. umr., að mér persónulega væri ekki fast í hendi um þennan hluta 1. gr., og sama má eg segja um meðflutningsmann minn, hv. 2. þm. Rangv. (E.P.). Aðalatriðið er, að fá nauðsynlega bót á aðflutningsbannslögin til varnar gegn afleiðingum dóma landsyfirréttarins, og er það sérstaklega 2. gr. frumvarpsins, sem eg á þar við; en hún mælir svo fyrir, að ekki skuli framar vera vítalaust að taka við áfengi á floti, hvort heldur gegn endurgjaldi eða endurgjaldslaust.
Eg býst ekki við, að menn hafi á móti upphafi 1. gr. frumv., að veita sendiræðismönnum framandi ríkja heimild til að flytja inn áfengi til heimilisþarfa sinna. Sendiræðismenn þeir 2, sem hér eru, hafa farið þess á leit, og stjórn annara þeirra mikillega óskað þess. Það er engin ástæða til að óttast misbrúkun af hendi slíkra manna. Heimildin nær að eins til áfengis til heimilisþarfa, enda eftirlitið jafnríkt með þeim flutningi sem öðrum.
Eg gat þess, að mér væri ekki fast í hendi um miðhluta 1. gr., er fer fram á að veita undanþágu þeim útlendingum, sem annaðhvort vinna verk í þarfir landstjórnarinnar — átti eg þar við Generalataben — eða reka annað erindi útlendrar stjórnar, en þar með átti eg við herakipin. Komið hefir til orða að veita útlendingum, sem hér dvelja við veiðar, t. d. Englendingum, og ekki þykjast geta verið án whiskys, undanþágu frá lögunum. En eg geri ekki tillögu um það. Aðaltilgangurinn var sem sé sá, að gera aðflutningsbannslögin betri til framkvæmda en þau eru eftir niðurstöðu landsyfirdómsins.