04.08.1913
Neðri deild: 25. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 708 í C-deild Alþingistíðinda. (520)
86. mál, aðflutningsbann á áfengi
Kristinn Daníelsson:
Eg stend að eins upp til þess að stinga upp á því, að þessu frumv. verði vísað til nefndar, og þykir mér miður farið, að það ráð var ekki tekið upp Við 1. umr. Þetta mál hefir þó verið svo mikið kappsmál á báða bóga, að ekki virðist veita af nefnd til að íhuga það, og þess er ekki við að dyljast, að þær breytingar, sem frumv. fer fram á, hafa þegar orðið að deiluefni manna á meðal. Þetta þarf engan að furða, því að hér er að ræða um undanþágur frá gagngerðri stefnu laganna, undanþágur, sem ekki verður sagt, hverjar afleiðingar kunni að hafa. Skoðanir manna eru mjög skiftar um frumv., bæði meðal vina og óvina bannmálsins. Sumir telja frumv. óhæft, aðrir telja það gott, og þykir vel farið að frumv. skuli vera komið fram, þótt ekki væri til annara en apilla fyrir bannlögunum. Þetta ætti að vera næg ástæða til að kjósa nefnd í málið.
Eg fyrir mitt leyti tel þetta frumvarp óviðfeldið. Eg lít svo á sem vorkunn sé þótt fleiri vilji fá undanþágur, þegar þessir hafa fengið. Ekki þori eg að svo vöxnu máli að fullyrða, að engin ástæða sé að veita þessa undanþágu, sérstaklega ef útlend stjórn æskir þess. Það kom fram við 1. umr., að slík málaleitun hafi komið frá Frakkastjórn, og getur þá verið, að það þyki kurteisisskylda að verða við þeim tilmælum. En ónærgætið finst mér það raunar, að aðrar þjóðir fari þess á leit, að þeirra menn skuli öðlast frelsi frá því að beygja eig undir lög, sem sú þjóð verður að lúta, er mennirnir dvelja hjá. Eg efast um, að farið mundi fram á, að þess konar undanþágur væru gerðar hjá öðrum þjóðum. Líklega hefði aldrei komið fram beiðni um slíkt, ef ekki væri kunnugt, að svo skiftar eru skoðanir manna á málinu hér á landi, og að undanþágan félli í góðan akur hjá svo mörgum, sem. andstæðir eru lögunum og láta sér vel líka að þau séu vettugi virt. Ef hér er um kurteisisskyldu að ræða, þá er líka rétt að athuga þær röksemdir og viðurlög, sem í móti liggja, og yrði það þá hlutverk nefndarinnar.
Um einstök atriði skal eg taka það fram, að eg álít 2. gr. frumv. nauðsynlega og sjálfsagt að samþykkja hana.
Tillaga mín er að kjósa 5 manna nefnd í málið og fresta umræðunni.