04.08.1913
Neðri deild: 25. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 710 í C-deild Alþingistíðinda. (522)

86. mál, aðflutningsbann á áfengi

Jón Ólafsson; Herra forseti! Eg stend ekki upp til þess, að ræða efni frumv., heldur til þess að gera athugasemd út af tillögu háttv. 2. þm. G.-K. (Kr. D.) um nefndarskipun. Eg veit ekki til þess, að á nokkuru þingi hafi verið skipaðar jafnmargar nefndir sem á þessu. Það má heita svo, að hverju smámáli hafi verið vísað til 5 manna nefndar. Afleiðingin hefir orðið sú, að málin hafa rekist hvert á annars horn, menn hafa ekki getað mætt á nefndarfundum og þingstörfin hafa stíflast. Þetta mál er ekki flóknara en svo, að eg tel óþarft að kjósa nefnd til að íhuga það.