04.08.1913
Neðri deild: 25. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 712 í C-deild Alþingistíðinda. (526)
86. mál, aðflutningsbann á áfengi
Kristinn Daníelsson:
Eg vona að eg þurfi ekki að verja mig fyrir þeim grun, að eg vilji bannlögunum á nokkurn hátt illa, né að eg sé á móti þeim umbótum á lögunum, sem nauðsynlegar eru til þess að tryggja að þau komi að tilætluðum notum. En eins og eg hefi sagt, þá hefi eg ekki enn getað sannfærst um nauðsyn þessarar undanþágu fyrir ræðismennina. Mér þætti vænt að fá að sjá þetta bréf frönsku stjórnarinnar áður en eg ræð með mér, hvort eg greiði atkvæði með þessari undanþága fyrir konsúlana eða ekki. Sem sagt, eg álít nauðsynlegt, að málið sé athugað í nefnd. Eg get ekki kannast við það, að tíminn sé ekki nægur, þar sem ekki er liðinn nema helmingur þingtímans. Eg hefi einu sinni verið á móti nefndarskipun í þessu máli, en það kom af því, að það hefði orðið bannlögunum að bana, því að þá var ekki eftir nema vika af þingtímanum.
Háttv. 1. þm. Rvk. (L. H. B.) var að hugga okkur með því, að ekki þyrfti að óttast vondar afleiðingar af þessari undanþágu, vegna þess að ekki væri hætt við, að vínið breiddist út frá konsúlunum. Það er heldur ekki það sem eg óttast, heldur hitt, að fleiri komi á eftir með sams konar beiðni. Og þótt eg fyrir mitt leyti sé í engum vafa um, hvernig eg mundi svara því kvabbi, þá er ekki sagt, að þingið verði alt af eins skipað og nú.
Ástæða háttv. 1. þm. S.-MúI. (J. Ól.), að það sé búið að setja svo margar nefndir, að fleiri eigi ekki að setja, get eg ekki séð að vegi þungt á metunum. Það á að setja nefnd alt af þegar þess er þörf.