05.08.1913
Neðri deild: 26. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 719 í C-deild Alþingistíðinda. (530)
43. mál, samþykktir um hringnótaveiði
Framsögum. minni hl. (Matth. Ólafsson):
Það er satt, að háttv. flutningam. (St. St.) er búinn að slá talsverðu af upphaflegum kröfum sínum, enda var honum var honum ekki hægt með neinu móti að halda þeim fram, af því að enginn í nefndinni vildi ganga svo langt. Meiri hluti nefndarinnar áleit þó, að það gæti engu spilt að veita samþyktarheimild, þegar takmarkið væri sett svo þröngt, sem gert er með brt. á þgskj. 158. En minni hlutinn vildi enga samþyktarheimild gefa í þessu efni.
Kenningin um, að þessi eða hin veiðiaðferðin spilli veiðiskap alment, get eg ekki Séð að sé bygð á neinu viti. Það er leiðinlegt að þurfa að segja það, en það hefir aldrei sýnt sig, að nokkur veiðiaðferð hafi spilt fyrir annari, og reynslan sannar, að þessi kenning er hégóminn einber. Því hefir verið haldið fram, að hringnótaveiðarnar reki síldina til hafa. Hvers vegna til hafa? Það er almenn kenning, að ef hvalir komi inn á firði, þá reki þeir síldina upp að landinu. Hví skyldu þá hringnótaveiðarnar eða sá usli, Sem af þeim stendur, ekki geta valdið því sama? Ef síldin gengur jafnharðan út úr Eyjafirði og hún gengur inn, þá er það ekki hringnótunum að kenna, heldur myndi hún eina gera það þótt engar hringnótir væru þar til.
Háttv. framsögum. meiri hl. (St. St.) sagði, að það væri ekki hætt við að skip stunduðu veiði fyrir innan Hrísey. Eg get ekki verið sammála honum um það, því að það er oft hægt að stunda hringnótaveiðar fyrir innan Hrísey þótt ekki sé unt að fiska fyrir utan hana sökum storms og stórsjóa. Eyjan dregur mjög úr hafsjó, og er því oft hægara að vera að veiðum innan við eyjuna heldur en fyrir utan hana.
Þá tók inn háttv. flutningsm. og framaögum. meiri hl. (St. St.) það fram, að út með Eyjafirði væru menn, sem ættu hringnætur, og að þeir vildu fyrir hvern mun láta banna hringnótaveiðar í firðinum. Það minnir á söguna um illgjarna manninn, sem lét stinga úr sér annað augað til þess að andstæðingur hans misti bæði augun.
Það er alt af verið að klifa á þjóðarviljanum hér í deildinni, en í þessu tilfelli er það ekki einu sinni svo, að þetta sé almennur vilji. Það liggur hér frammi á lestrarsalnum þingmálafundargerð frá Akureyri, þar sem því er mótmælt, að hringnótaveiði verði bönnuð á Eyjafirði. Og Akureyringar rökstyðja það engu síður en herrarnir út með firðinum. Það er verið að slá á hjartastrengi þingmanna með því að tala um, að hér sé einungis verið að gera tilraun. Það getur orðið nokkuð dýr tilraun, gæti jafnvel kostað landið um 100,000 kr. Eg hefi átt tal við útgerðarmann hér í Reykjavík, sem hefir hringnótaveiði á Eyjafirði og veiðistöð þar, og sagði hann, að hann myndi flytja sig burtu, ef samþykt yrði gerð, og það jafnvel þó að þessi takmarkalína yrði sett. Eg vil segja, að ekki einungis sveitin, heldur landið alt. hefði stóran óhagnað af því, ef hans útvegur yrði að hætta. Eg og við minnihlutamenn getum ekki annað en ráðið til að frumv. verði felt.
Þá er breyt.till. á þgskj. 264. Hún á sammerkt við hina, en gengur þó það lengra, að hún gerir þetta svið, sem samþyktarheimild á að ná yfir, enn þá víðtækara. Menn geta bráðum búist við að farið verði fram á að friða hvern fjörð á landinu. Eg tel það mjög varasamt að loka fjörðunum í 5 ár. Með því eiga menn á hættu að missa mikinn afla, en óvíst hvað menn hreppa í staðinn.
Því hefir verið haldið stranglega fram, að á Eyjafirði fari sá tími saman, er veiðiskapur þverrar og hringnótaveiðiaðferð er notuð. Þó svo væri, að tími þessi færi saman, þá er ekki þar með sagt, að það sé hringnótunum að kenna. Þetta hefir alstaðar komið fyrir, að fiskur hefir lagst frá á löngu tímabili. Menn þekkja ekki orsakirnar. Á vesturlandi hafa stundum komið síldargöngur án þess að nokkur þorskur kæmi með. En áður héldu menn, að alt af kæmi þorskur samfara síldargöngum, en nú hefir það sýnt sig, að svo er ekki altént. Þetta er órannsakað mál, og er því ekkert á því að byggja.
Eg vona að menn hugsi sig tvisvar um áður en þeir fara að samþykkja þetta frumv., sem mjög efasamt er að geri nokkurt gagn, en miklar líkur til að geri talsvert ógagn.