05.07.1913
Neðri deild: 4. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 51 í C-deild Alþingistíðinda. (54)

14. mál, vitagjald

Eggert Pálsson:

Þó að ekki verði sagt, að beint samband sé á milli þessa frv, og næsta frv. á undan um breytingar við vörutollslögin, má þó segja, að þau séu í óbeinu sambandi hvort við annað, þar sem bæði hljóða um undanþágu frá lögskipuðu gjaldi.

Vil eg því leyfa mér að leggja það til, að máli þessu verði vísað til tolllaganefndarinnar að þessari 1. umræðu lokinni.