05.08.1913
Neðri deild: 26. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 742 í C-deild Alþingistíðinda. (550)
91. mál, kornforðabúr til skepnufóðurs
Framsögum. (Pétur Jónsson):
Eg tók það stuttlega fram Við 1. umr., hver tilgangurinn væri með þessu frv., eða hver orsök væri til þess að frumvarpið er fram komið, sem sé það, að komið er í ljós á seinni tímum að kornforði í verzlunum er minni en áður var, og þó hefir aldrei verið svo áatatt, að trygt væri um að bjarga búpeningi með kraftfóðri, þegar heyleysi bæri að höndum. Þetta frumv. miðar að því, að uppörva héraða- og sveitastjórnir til þess að koma einhverri vörn við og reyna að tryggja sveitirnar og héruðin. þegar ekki verður lengur treyst á verzlanirnar, eins og áður var hægt þegar einokunin var meiri. Hefir okkur flutningsmönnunum virst það ráðið tiltækilegast, sem lýst er í frumv. Sumir hafa látið í ljós, að ekki væri nóg að heimila þessar samþyktir, heldur þyrfti að fyrirskipa, að svo skyldi vera í hverju héraði. Við höfum þó ekki viljað ganga svo langt. En ef breyt.till. hefði komið fram, sem í þá átt hefði farið, þá hefði eg fyrir mitt leyti viljað, að það væri tekið til íhugunar.
Hvað tillag landssjóðs snertir, þá höfum við gert áætlun um kostnaðinn, sem af þessu leiðir. Það er fyrst rentutapið, sem leiðir af því að liggja með korn frá því á haustin og fram á sumar, þangað til útséð er, hvort það verður notað til skepnufóðurs, þó að því leyti, sem það verður ekki notað til þess. Kostnaðurinn á þeim hluta kornsins, sem notaður er, legst á þá sem nota það. En ef kornið er ekki notað, verða sveita sjóðirnir að bera kostnaðinn, fyrst rentutapið, þá húsaleigu og loks einhvern áhættukostnað, því að á þessu tímabili getur kornið lækkað í verði, svo að skaði sé að hafa legið með það. Enn er ótalið ábyrgðargjald. Þennan kostnað höfum við áætlað 8–10% af verðinu. Verð rúgtunnunnar höfum við gert 16–20 kr. Hvort sem nú er reiknað 8% af 20 kr. eða 10% af 16 kr., verður kostnaðurinn kr. 1,60 á tunnuna eða 100 kg. Þar af viljum við að landasjóður borgi helminginn, þó aldrei yfir 80 aura á tunnuna, þó að kostnaðurinn fari fram úr því sem við höfum áætlað. Við höfum ekki gert áætlun um, hve landssjóðstillag þetta yrði mikið á ári. Ef mikið er notað, er mikið gagn að forðanum, en kostnaður litill. En sé hann lítið eða ekki notaður, verður kostnaðurinn talsverður að vísu, en þá er það að þakka því sem mest er í varið, að fóðurskortur hefir eigi orðið tilfinnanlegur.
Frekari skýringa álít eg ekki þurfa, en óska að málið fái að ganga leiðar sinnar.