05.08.1913
Neðri deild: 26. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 753 í C-deild Alþingistíðinda. (562)
85. mál, lögreglusamþykkt og byggingarsamþykkt fyrir Vestmannaeyjasýslu
Forseti (M. A.):
Áður en umræður hefjast af nýju, þykir mér hlýða að minnast hér á það, að af þeim mönnum, er áttu sæti með oss hér í neðri deild á síðasta þingi, er enn einn hinn þriðji — látinn, Guðlaugur Guðmundsson, sýslumaður og bæjarfógeti á Akureyri. Hann dó einni stundu og 40 mín. eftir hádegi í dag. Á þingi í fyrra vann hann reyndar þingstörf sín með þeirri atorku og ósérhlífni, sem honum var lagin. Samt mætti þá þegar sjá forboða þess, sem nú er fram komið. Hann hafði þá sýnilega tekið sjúkdóm, þann sem fyrst neyddi hann til að leggja niður þingmensku og leiddi hann síðan til bana eftir langvinnar þjáningar. Guðlaugur mun hafa setið á 10 Alþingum alls, seinast 1912, og það er ekki of sagt, að hann var jafnan talinn meðal inna atkvæðamestu þingmanna, enda var hann mikill gáfumaður, málsnjall með afbrigðum, fylginn sér og mikilvirkur bæði við þingstörf og annað, er bann átti að vinna. Hann mun hafa gegnt inu erfiða embætti sínu með miklum dugnaði og skyldurækni, og jafnvel í banalegunni vann hann að því með fádæma þreki og staðfestu næstum fram í dauða.
Við lát Guðlaugs Guðmundssonar hefir þjóð vor mist merkan nytsemdarmann og vér hugsum til hans með söknuði og hlýjum huga.
Blessuð veri minning hans.
Þingmenn hlýddu standandi á ræðu forseta.
Forseti tilkynti, að nefnd, sú sem kosin var til þess að íhuga frumv. til laga um lögskipaða endurskoðun, hefði kosið sér formann Kristján Jónsson og skrifara
Bjarna Jónsson frá Vogi.
Forseti skýrði frá, að útbýtt hefði verið í deildinni:
1. Þingsályktunartillögu um skipum nefndar til þess að íhuga beiðni frá hr. P. J. Torfasyni, um einkarétt honum til handa til þess að vinna salt úr sjó með nýrri aðferð, og fleiri tillögur sama manns um hérlendan atvinnurekstur. Flutningsm.: Bened. Sveinsson, Pétur Jónsson, Guðmundur Eggerz, Matth. Ólafsson, Bjarni Jónsson frá Vogi (280).
2. Nefndaráliti, um frumvarp til laga um sölu á þjóðjörðinni Reykjum í Hrútafirði (283).
3. Breytingartillögu við frumvarp til laga um breyting á lögum um vörutoll 22. Okt. 1912. Frá nefndinni (281).
4. Frv. til laga um samþykt um hringnótaveiði í Eyjafirði. Eftir 2. umr. í Nd. (282).
5. Breytingartillögu við frumvarp til viðaukalaga við lög nr. 24, frá 9. Júlí 1909, um samþyktir um kornforðabúr til skepnufóðurs. Frá flutningsmönnum (285).
Forseti skýrði enn fremur frá, að útbýtt hefði verið frá Ed.:
1. Frv. til laga um samþyktir um eftirlit úr landi með fiskiveiðum í landhelgi.
Eftir 2. umræðu í Ed. (284).
Því næst var tekið fyrir 7. mál á dagskrá.
FRUMVARP til laga um heimild fyrir stjórnarráðið til þess að veita mönnum rétt til þess að vera dómtúlkar og skjalþýðendur (194). 1. u m r.