05.08.1913
Neðri deild: 26. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 771 í C-deild Alþingistíðinda. (578)
96. mál, heimild fyrir veðdeild Landsbankans
Jón Ólafsson:
Herra forseti ! Eg stend upp aftur að eins til að svara háttv. 1. þm. Árn. (S. S.) nokkrum orðum.
Hann hélt því fram, að húsavirðingar hér í Reykjavík mundu vera hlutfallslega háar, en jarðavirðingar til sveita þar á móti sanngjarnar. Eg get sagt honum það, að bankastjórnin er svo kunnug hér í Rvík, að hún fer eftir því sem sanngjarnt er, en ekki eftir mati eingöngu. Að því er til hins kemur, að jarðirnar séu svo lágt og sanngjarnlega metnar, þá býst eg við, að hann myndi ekki segja það, ef hann sæi matsgerðirnar á jörðunum eins og þær alment koma til bankana. Eg þori að fullyrða, að það er ekki nærri 1/6 partur af þeim, sem nær nokkru lagi. (Sigurður Sigurðsson: Þm. hefir ekki hugmynd um þetta). Eg hefi margfalt meiri þekking á því, en háttv. þingm., og eg gæti sannfært þm., ef hann vildi koma niður í bankann og líta á dæmi. Virðingarmennirnir hafa fleiri skyldur, sem þeir þurfa að taka tillit til, heldur en að meta jarðirnar. Þeir eiga líka að skýra frá, hvað þær séu leigðar, og þeir eiga að skýra frá, hvað þeir áliti þær sanngjarnlega leigðar. Eg skal taka dæmi: jörð er metin til hæfilegs söluverðs undir eiðs-tilboð af virðingarmönnum 5000 kr., og sömu virðingarmenn skýra í sama skjalinu frá, að hún hafi verið seld síðasta ár fyrir 3000 kr., og enn fremur meta sömu menn í sama skjali »hæfilegt eftirgjald« eftir jörðina alls 120 kr. á ári.
Getur nú ekki háttv. þingm. reiknað út, að þegar peningavextir eru 6%, þá er þessi jörð 2000 kr. virði, og ekki eyris virði meira?
En virðingarmennirnir sjálfir skilja ekki, hvað þeir eiga að gera. Enda er það kunnugt, að það er algengt til sveita, þegar einhver er kvaddur til að virða jörð, að hann spyr: »Er það til skatta eða lántöku?« Næsta spurningin verður svo: »Hvað mikið lán þarftu að fá?« (Sigurður Sigurðssen: Hvaðan koma þingm. þessar Gróu fréttir?) Eg hefi heyrt þessa alt of mörg dæmi, og eg er þessum málum miklu kunnugri heldur en háttv. 1. þm. Árn (S.S.), eins og eðlilegt er. Eg er sannfærður um, að meira en helmingurinn af öllum virðingarmönnum hér á landi, sem eiga að vinna starf sitt undir eiðs tilboð upp á æru og samvizku, og eiga að meta jarðirnar, eins og þær mundu ganga í kaupum og sölum — helmingur þeirra, að minsta kosti ættu að sitja í betrunarhúsi fyrir virðingar sínar, og yrðu óefað dæmdir til þess, ef bankastjórnin heimtaði sakamál höfðað gegn þeim.