05.08.1913
Neðri deild: 26. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 773 í C-deild Alþingistíðinda. (582)

65. mál, eignarnámsheimild fyrir bæjarstjórn Ísafjarðar

Matthías Ólafsson:

Það sýnist vera ógnarlega meinlast þetta frv. hér, en eg hygg þó að á því sé sá galli, að það sé ekki almennur vilji þar vestra, að þetta verði að lögum. Eg talaði nýlega við tvo menn af Ísafirði, og þeim kom það mjög ókunnuglega fyrir, að þetta mál hefði verið lagt fyrir þingið, því að ekki hefði verið minst á það á þingmálafundum Hins vegar er mér það kunnugt, að oddviti bæjarstjórnarinnar á Ísafirði hefir beðið háttv. flutningsm. málsins í Ed. að flytja það inn á þing, og það mun hafa verið samþykt af meiri hluta bæjarstjórnarinnar. En það sýnist ekki ævinlega vera almennur vilji fólks á Ísafirði, sem gengur þar í gegn í bæjarstjórninni. Eg held að þessir menn, sem eg gat um, hafi talað frá hjartanu, þegar þeir sögðu, að ekki bæri að gera þetta að lögum. Þeir álíta fyrst og fremst, að það sé ófyrirsjáanlega langur tími þangað til höfn verður gerð á Ísafirði. Náttúran hefir séð þar fyrir góðri höfn, þar sem er pollurinn. Og eins og nú stendur eru þar 3 hafskipabryggjur, og þurfa gufuskip, sem víð þær leggjast, engan bryggjuskatt að greiða. Þess vegna er það ekki nema óþörf áreitni við menn, sem eiga lóð niður að sjónum, að vera að gera þetta að lögum. Það er að minsta kosti skoðað svo fyrir vestan, og eg vildi því óska, að málið verði sett í nefnd til rækilegrar yfirvegunar, ef því verður annars hleypt til 2. umr.