05.08.1913
Neðri deild: 26. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 783 í C-deild Alþingistíðinda. (596)

58. mál, hvalveiðamenn

Ráðherrann (H. H.):

Stjórnarskráin bannar að svifta menn eign sinni nema með endurgjaldi. Ef atvinna er tekin frá manni, fellur eignin, sem að atvinnunni lýtur, í verði. Og svo yrði hér með hvalveiðamennina. Séu þeir sviftir atvinnunni, eru þeir líka sviftir eign sinni. Og efast eg um það, að landssjóður slyppi án þess að greiða endurgjald ef hvalveiðamenn færu í skaðabótamál. Leyfi eg mér að efast um, að Norðmenn hafi nokkurntíma neitað hvalveiðamönnum endurgjalds, eina og hv. frams.m. hélt fram. Hitt er annað mál, hvort þeir hefðu sloppið við að greiða endurgjald, hefðu hvalveiðamenn farið í mál. Álít eg það ósannað. En væri um endurgjald að ræða, þá væri það ekki vegna atvinnumissisins, heldur vegna húsanna og Verkfæranna.