07.07.1913
Neðri deild: 5. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 63 í C-deild Alþingistíðinda. (60)

15. mál, laun íslenskra embættismanna

Benedikt Sveinsson:

Embættismannafjöldinn hér á landi hefir lengi verið annálaður af útlendum sem innlendum. Hvergi á jarðríki er slíkur urmull opinberra starfsmanna sem hér á landi móts við mannfjölda. Þessu veldur strjálbygð landsins og má ekki við því gera. Hitt er annað mál, að of mikið má að öllu gera og svo er um embættafjöldann hér og kostnaðinn, er af honum leiðir.

Þjóðin hefir þráfaldlega krafist þess, að eftirlaun væri afnumin og hún er því andstæð, að laun inna æðri embættismanna sé hækkuð úr því, sem nú er.

Því var það, að Alþingi 1911 skoraði á stjórnina að leggja fyrir næsta reglulegt Alþingi frumvarp um afnám allra eftirlauna. Var búist við, að stjórnin hlyti að taka þessa kröfu til greina.

Þjóðin hefir verið að bíða eftir efndum stjórnarinnar, en það eru ekki nema fáir dagar, síðan svar hennar varð þjóðkunnugt. — Menn höfðu þózt mega krefjast þess af núverandi stjórn, að hún sinti kröfunni eftir alt sparnaðartalið og fjármálagauraganginn, sem liðsmenn hennar höfðu í frammi 1911. Mun seint úr minni líða, hversu afskaplega flokkamenn núverandi ráðherra létu þá af fjárhag landsins. Æðsti presturinn byskup vor, talaði þá með andagift gömlu spámannanna um spilling heimsins og hét á ginnregin að leiða fólkið til sparnaðar og sjálfsafneitunar. Aðrir berserkir flokksins brýndu það fyrir lýðnum að taka kenningum frakkneska heimspekingsins Rousseau's og gáfu jafnvel út heilar bækur um “Einfalt líf„. Þetta hafði sín áhrif í þá daga — en blessaðir mennirnir vilja nú eftir kosningarnar ekki lengur sætta sig Við þau kjör, heldur lifa tvöföldu eða margföldu lífi.

Efndir stjórnarinnar sjást á frv. því, sem lagt er fyrir deildina í dag. Hún hefir, sem von er, haldið því leyndu í lengstu lög!

Ráðherra var áðan að fjargviðrast út af því, að rangt hefði verið sagt frá þessu frumv — En hverjum er það að kenna? — Það er honum sjálfum að kenna, sem hefir haldið þessu leyndu í líf og blóð. Ekkert var honum hægra, en láta þjóðina vita allan sannleika fyrir löngu. En hví gerði hann það ekki? Þar að auki hefir stjórnin sjálf látið fars með blekkingar í þessu máli.

Þetta — frumv. er óframbærilegt. Það fer fyrst og fremst fram á að hækka laun þeirra embætta, sem nú eru hæst launuð, svo sem byskups og landritara.

Embætti þessi eru hæg. Landritari getur verið mánuðum saman erlendis um leið og ráðherra, hann er að eins tvær stundir á dag til viðtals og sinnir þó annarlegum störfum á þeim tíma. –Byskupsstaðan er ekki orðin annað en skuggi. Vald biskups er nú orðið svo lítið, að stjórnarráðið hefir gaman af að virða það að vettugi. (Ráðherrann: Við hvað á þm.?) Eg skal nefna nýjasta dæmið, þegar biskup segir presti, að hann skuli hafa sín orð fyrir því að hann fái brauð, en stjórnarráðið ákveður ið gagnstæða.

Í annan stað þykir mörgum sem landritara t. d. sé það nægilegt að fá 6400 kr. á ári, eða 500 kr. um mánuðinn, góðar 117 kr. um vikuna, svo hann geti þolað við í bráðina.

Aðrir embættismenn, svo sem skrifstofustjórar, yfirdómarar og háyfirdómarar hafa frá 3500–4800 kr. að árslaunum eða frá 3–4 hundruð krónur um mánuðinn og virðist sem það sé ærin laun og eigi þurfi við þau að bæta. Að kalla slíkt “rýr embætti„ sýnir vel gegndarleysið, sem stjórnin er að stefna að með fargani sínu.

Stjórnin hefir viljað “fóðra„ launahækkun dómenda í landsyfirréttinum með því, að í þau embætti þurfi ina hæfustu og reyndustu menn, sem eigi dugi að bjóða verri kjör en Sýslumönnum og bæjarfógetum. Við þessu er það að segja, að gömlu launakjörin hafa ekki staðið landsyfirdómnum fyrir þrifum hingað til. Má t. d. geta þess, að fyrir örfáum árum sótti maður með beztu launum, úr bæjarfógetastöðu í Reykjavík, um stöðu við yfirdóminn.

Enn fremur tekur stjórnin það fram, í athugas. við frumvarpið, að í engum embættum sé eins nauðsynlegt að hafa vel launaða menn, sem í dómaraembættunum, til þess, að þeir gefi sig eingöngu við embættisstörfum sínum, en séu ekki neyddir til að leita annarar atvinnu. En það er augljóst, að hér fylgir ekki hugur máli, því að á sama tíma, sem stjórnin kemur með þetta frv. er hún sjálf að berjast við það utan lands og innan, að útvega háyfirdómaranum bitling hjá prívatstofnun, sem oft hlýtur að eiga í málaþrasi við menn. Ráðherrann hefir sjálfur útvegað honum undirtyllustöðuna í Íslandsbanka og má nærri geta að stjórnin ætlast ekki til þess, að háyfirdómarinn léti af því starfi, þótt launahækkunarlögin næði fram að ganga.

Þá mætti benda á, að laun inna æðstu embættismanna í Reykjavík eru all-miklu hærri en þau eru talin á pappírnum. Stöður þeirra veita þeim oft og einatt hæga aðstöðu til að afla sér mikilla aukatekna. Fá þeir oft sérstaka borgun fyrir ýmis störf, sem embætti þeirra fylgja. Landritari hefir t. d. fengið hlutdeild í launum þeim sem ráðherra Íslands fær sem formaður í fulltrúaráði Íslandsbanka, reiknað hlutfallslega eftir þeim tíma, er hann hefir gegnt störfum ráðherra í fjarveru hans. Nam það að minsta kosti talsverðu í tíð Bjarnar heitins Jónssonar, er lengi var utanlands sakir heilsubrests og í stjórnarerindum. Ennfremur þykir landritari sjálfsagður að sitja í öllum milliþinganefndum og í kolanefndinni sælu tók hann 8 kr. á dag fyrir þann starfa. Veit eg ekki gjörla, hve miklu þetta hefir numið, en ekki hefir það verið smáræði, því lengi sat sú nefnd á rökstólum, þótt gagnið yrði minna. Annars virðist sem landritari ætti alls ekki að fá sérsök laun fyrir slík störf, úr því að það er stöðunnar vegna, sem hann er látinn gegna þeim. Það er óþarfi að minnast á frímerkin, sem þjóðkunnugt er orðið að landritari hefir miklar tekjur af, eða “aukaskriftir„ hans í stjórnarráðinu, ritlaun fyrir embættismannatalið o. s. frv., eða þegar háttstandandi embættismenn bregða sér upp í sveit til heilsubótar á sumrin og taka daglaun og ferðakostnað úr landssjóði fyrir að líta eftir vegum, líta eftir eldgosum eða öðru álíka nauðsynlegu!

Það er og fullyrt, að landritari hafi nýlega verið vel á veg kominn að útvega sér endurskoðarastöðu við Íslandabanka, þótt annar yrði í þetta sinn hlutskarpari.

Enn er það, að þetta hálaunalið situr fyrir ýmsum hlunnindum, eins og in fræga uppeldisstofnun, landsímastöðin, ber bezt vitni um, þar sem dætur ráðherra, landritara, landlæknis og háyfirdómara þykja sjálfsagðar að sitja í fyrirrúmi fyrir öðrum, þótt hæfari sé og reyndari í starfinu.

Stjórninni hefði verið nær að endurskoða frá rótum launakjör allra embættismanna í stað þess að koma með launafrumv., það sem hér er um að ræða. Er tími til kominn að afnema ýmis óþörf embætti, svo sem byskupsembættið, sem orðið er að steingervingi og helzt er notað til gamans stjórninni, er hún skemtir sér við að úrskurða þvert ofan í tillögur byskups. Einnig væri eigi vanþörf á að afnema landritaraembættið, er ekki virðist ýkja-nauðsynlegt, þar sem landritari getur að meinalausu verið erlendis mánuðum saman á sama tíma sem ráðherra er utan og fleiri starfsmenn stjórnarráðsins.

Frumvarp þetta gengur í berhögg við marg-yfirlýstan vilja þjóðarinnar.

Það er ranglátt, þar sem það byrjar á að hækka laun þeirra, sem mest hafa áður.

Það eykur ójöfnuð í landinu, eykur mismuninn á kjörum inna fátæku og efnuðu.

Það þyngir á almenningi, sem verður að greiða þeim mun meira, sem meira er hlynt að þeim sem ekki þurfa stuðnings við.

Það eykur óánægju almennings um kjör sín; hann sér, að vilji hans er fyrirlitinn, nauðsyn hans er látin sitja á hakanum, lagðar á hann nýjar álögur til þess að hækka laun æðstu embættismanna í Reykjavík.

Kjör almennings eru ekki svo glæsileg, að þau megi versna úr þessu. Fjöldi fólks á bezta aldri fer nú til Vesturheims. Aðfarir stjórnarinnar glæða Ameríkuferðirnar. Núverandi stjórn væri vel að því komin að fá heiðurspening hjá Manitobastjórn fyrir frammistöðu sína !

Hagur landssjóðs leyfir engan veginn nýjan fjáraustur. Tekjuhallinn er nú um 40 þúsundir á frumv. stjórnarinnar. Er þó lítill vandi að sniða á kné sér skaplegt fjárlagafrumvarp, en reynslan hefir sýnt, að áhallinn verður jafnan meiri þegar fjárlögin hafa gengið í gegnum þingið. Landið er orðið stórskuldugt og þarf að greiða mikið af sínu fé í vexti og afborganir eldri skulda. Í fjárlagafrumvarpi stjórnarinnar mun nú ætlað nær 90 þúsundum minna til framleiðslu-fyrirtækja en áður, en þó farið fram á nýja skatta á þjóðina. Sýnir þetta vel fjárhaginn.

Mér er í minni mynd, sem gefin Var út vorið 1909. Hún var kölluð “Kjötpottur landsins„ og var eftir einhvern listamann núverandi stjórnarflokks. Þar átti að sýna sem átakanlegast, hvernig blásnauð alþýðan rogaðist undir böggum sínum til þess að bera í inn mikla kjötpott, en umhverfis voru þeir sýndir í ýmissa dýra líkjum, sem peninga fengi úr landssjóðnum. Var mynd þessari mjög á loft haldið af fylgifiskum núverandi stjórnar. Væri nú vel, að þeir hinir sömu snillingar, er þessa mynd gerðu, gæfi út nýja útgáfu hennar til þess að sýna siðbót þeirra manna, sem nú eru kosnir til valdanna.

Annars legg eg til, að frumv. þessu Verði nú þegar markaður aldur og ekki látið fara lengra.