06.08.1913
Neðri deild: 27. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 786 í C-deild Alþingistíðinda. (601)

86. mál, aðflutningsbann á áfengi

Framsögum. (Lárus H. Bjarnason):

Eg ætla að víkja dálítið við orðum þess háttv. þm., sem talaði um 1. málið. Eg vona að háttv. deild sýni þessu frumv. eigi að eins sömu velvild og áður, heldur meiri, og að nú greiði bæði bannvinir og aðrir því atkvæði.