06.08.1913
Neðri deild: 27. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 797 í C-deild Alþingistíðinda. (611)

57. mál, girðingar

Ólafur Briem:

Eg hefi komið fram með breytingartillögur þær sem standa á þingskjali 289.

Háttv. framsögum. nefndarinnar hefir lýst því fyrir. nefndarinnar hönd, að hann gæti vel sætt sig við þær.

Þarf ekki mikið um þær að segja, enda eru þær ekki neinar verulegar efnisbreytingar, heldur að mesta leyti orðabreytingar.

Það sem eg aðallega ætlaði að geta um, er, að nefndin hefir tekið upp efnið úr 44. vegalaganna. Mér fanst betur eiga við, að úr því að þessi grein var tekin upp, væri einnig næsta grein vegalaganna tekin, sem er um sama efni. Þessi nýja grein, sem eg legg til að að komi á eftir 11. gr. frumvarpsins, er að miklu leyti samhljóða 45. gr. vegalaganna. Eg ætla að eins að geta þess, að skekkja hefir komið inn í breytingatillöguna. Þar stendur: »farinn fjallvegur«; en á að vera: forn fjallvegur.

Eg hefi lagt það til, að í stað »skemdir á girðingum« komi: skemdir á lögmætum girðingum. Það liggur í hlutarins eðli, að ekki ber að sekta menn fyrir að rjúfa ólögmætar girðingar. En það er rétt að taka það skýlaust fram í lögunum, til þess að tekin séu af öll tvímæli.

Hvað viðvíkur fyrirsögninni, þá álít eg réttast að hafa hana sem styzta og skýrasta, og legg því til að lögin séu nefnd girðingalög í staðinn fyrir lög um girðingar.

Þá ætla eg að minnast á ræðu háttv. þtn. A.-Sk. (Þ. J.). Eg er í aðalatriðunum á öðru máli en hann. Hann hélt því fram, að það ætti að mega skylda landeiganda til að girða fyrir land sitt, ef sá er land ætti á móti, áliti sér hag í því að girðingu væri komið á.

Kom hann með dæmi um að landeigandi, sem hefði sýnt nágranna sínum ágang, gæti haft upp úr því girðingu fyrir jörð sína, sér alveg að kostnaðarlausu. En þetta er að eins eitt dæmi. Það mætti finna önnur dæmi, þar sem niðurstaðan yrði alt önnur.

Hann lagði áherzlu á, að allir ættu að hafa girt heimaland sitt. Finst mér það fullmikið mælt. Jafnvel þó eg geri mér góða von um framtíð landsins, hefi eg þó ekki svo mikla tröllatrú, að eg álíti að landið geti enn sem komið er risið undir þeim kostnaði að girða öll heimalönd. Meira að segja, þó einhver útlendur auðmaður fyndi upp á því, að bjóðast til að girða öll heimalönd, og leggja út kostnaðinn við það, gegn því að landsmenn skuldbindu sig til að halda girðingunum við, áliti eg það mjög vafasamt, hvort bæri að taka boðinu. –Menn eru ekki búnir að reyna til hlítar, hvaða hag menn hefðu af því, þegar öll kurl koma til grafar.

Að minsta kosti verð eg að álíta, eina og nú horfir á um ræktun landsins, að ýmislegt annað ætti að sitja í fyrirrúmi.

Fyrir mér horfir málið svo við, að fyrst um sinn ætti það að vera aðalreglan, að girt væri ræktaða landið, tún og áveituengi, og jafnvel altslægjuland. En enginn skaði, þótt beitilandið væri ógirt og jafnvel að miklu leyti sameiginlegt á vissum svæðum.

Yfir höfuð finst mér lítið gera til þótt skepnur manna gangi á víxl yfir landamerki, ekki sízt þar sem eru víðlend heimalönd.

Það getur líka staðið svo á, að sá; er girða vill, sé stórefnaður maður, sem búinn sé að gera allar þær umbætur á jörðinni, sem bezt borga sig, og vilji svo leggja í girðingakostnað, þyki það að einhverju leyti þægilegt, en nágranni hans sé fátæklingur, nýbúinn að kaupa jörðina, og þurfi að leggja í byggingarkostnað eða verja fé sínu til einhvers annars, sem bráðnauðsynlegra er en girðingar, þá á að kúga hann til að girða á móti. Í þessu virðist lítil sanngirni.

Þá er það annað atriðið, sem háttv. sami ræðumaður hélt fram, að það ætti að vera algild regla, að menn gætu girt yfir vegi, með hliði fyrir veginum, án þess að sækja um leyfi. Held eg að það sé algerlega rangt. Meðfram veginum geta legið lönd margra jarða á litlu svæði, þar sem þéttbýlt er, og ef hver girti sitt land þannig, mundi ekki verða nema örstutt leið milli hliðanna á veginum. Liggur í augum uppi, að það eru ekki litil óþægindi fyrir mann á ferð, að þurfa að fara af baki við hvert hlið, í stað þess að geta farið leiðar sinnar óhikað. Maður, sem í myrkri ræki lest, gæti líka lent í hinum mestu vandræðum, myndi máske ekki eftir, hvað langt væri milli girðinganna og áttaði sig ekki á, að opna hliðin í tæka tíð.

Það er eina og gengur, að þó menn geti séð agnúa á einhverju lagaákvæði, þá er aftur agnúi á hinu, sem menn vilja að komi í staðinn, og þá hefir ástandið, sem er, meiri rétt á sér en nýmælið.

Þetta ákvæði kemur heldur ekki beint við þessum lögum, heldur vegalögunum. Þar er gildandi ákvæði í þessa átt, og hefir ekki komið fram tillaga um að breyta ákvæðinu í þeim. Og þó í þessi lög sé sett að menn megi girða fyrir vegi, ef hlið sé á girðingunni, þá stendur samt ákvæðið í Vegalögunum í fullum krafti, og það þarf þá að afnema, ef menn vilja samþykkja hér að lútandi tillögu háttv. þm. Dal. (B. J.).