07.07.1913
Neðri deild: 5. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 72 í C-deild Alþingistíðinda. (62)
15. mál, laun íslenskra embættismanna
Sigurður Sigurðsson:
Þegar sá kvittur gaus upp, að in háttv. stjórn hefði í hyggju að leggja fyrir þingið frv. um hækkuð laun handa hæstlaunuðu embættismönnum landsins, sló megnum óhug á allan þorra manna víðsvegar um landið.
Mér og mörgum fleiri varð á að spyrja: Hverning getur hæstv. ráðherra fengið sig til þess, eða látið aðra hafa sig til þess? Var ekkert til, sem meira lá á og kallaði ríkara eftir að komið væri í framkvæmd en þetta: að bæta við laun þeirra manna, er hæst launin höfðu áður?
Í athugasemdunum við frv. er gert ráð fyrir, að eftir fá ár þurfi að endurskoða laun allra embættismanna í landinu. Því mátti ekki bíða, þangað til stjórnin hefði haft tíma til þess, og um leið að athuga, hvort ekki væri gerlegt að fækka embættismönnum, eins og hv. þm. Stjk. (V. G.) benti á, og að lækka eftirlaunin eða afnema þau.
Það sem aðallega kom mér til að standa upp voru ýmis ummæli í ræðu hæstv. ráðherra. Aðalástæðurnar fyrir þessu frv. sótti hann í athugasemdir fyrir frumvarpi um laun háskólakennaranna, sem fram var borið á þinginu 1909. Þetta er dálítið einkennileg mælisnúra, þegar þess er gætt, að þeir menn sem hér áttu hlut að máli, voru einmitt sjálfir að leggja til um það, hvað þeim yrði skamtað úr kjötpottinum. Eg legg því ekki mikið upp úr þessari ástæðunni.
Þá benti hæstv. ráðherra á það, að kaupgjald verkamanna og Vinnuhjúa væri hærra nú en t. d. 1889 og verð allra afurða, bæði sjávarafurða og landbúnaðarafurða væri sömuleiðis hærra.
Að því er snertir kaupgjald verkamanna og vinnuhjúa, er það að athuga, að til skamms tíma var það óhæfilega lágt. Og þó að það sé rétt, að það hafi hækkað um 75%–100% eða meir, er kaupgjaldið svo lágt enn þá, að það er sízt samanberandi Við laun embættismanna. Þeir menn sem lifa á handafla sínum hér Reykjavík hafa 600–1000 kr. í kaup á ári. Eg er hræddur um að embættismennirnir mundu kveinka sér við að lifa af því. Vinnumenn í í sveit hafa 150–300 kr. í árakaup auk fæðis, og vinnukonur 75–150 kr. Þetta er kaupgjaldið, þrátt fyrir þessa gífurlegu hækkun, sem um var talað.
Viðvíkjandi verðinu á lands- og sjávarafurðum er þess að geta, að það er mjög mismunandi. Stundum er það hærra, stundum lægra. Það er ekki langt síðan að ullarpundið var í 50 aurum. Síðast í fyrra var það 60–65 aura. Og þó að nú liti út fyrir að afurðir verði í háu verði, er engin trygging fyrir því, að það verði til frambúðar. Við eins árs verð er ekki hægt að miða. Það er háð heimsmarkaðinum, og á honum ræður framboð og eftirspurn verðinu.
Það hefir verið tekið fram, að óviðfeldið væri að byrja á að hækka kaup þeirra sem hæst kaupið hafa, þar sem margir starfsmenn svo sem póstafgreiðslumenn og kennarar, sem hafa eins mikið og meira að gera en þeir hálaunuðu, hafa svo lágt kaup, að það getur ekki talist lífvænlegt.
Annars má nefna ýmis dæmi sem sýna, að það er ekki brýn nauðsyn að hækka laun embættismanna hérna í Reykjavik. Þegar veizlur eru haldnar í þessum bæ, t. d. þegar einhver verður 60, 70 eða 80 ára, þá eru það embættismennirnir, sem gangast fyrir því. Þegar börn þeirra eru fermd eða skírð, eru dýrindis veizlur og hátíðahöld. — Þá hafa þeir ráð á að fara hverja skemtiferðina eftir aðra, innanlands eða til útlanda; ferðast jafnvel um Norðurálfuna þvera og endilanga, eins og landritarinn núna fyrir skömmu.
Enn fremur má minna á, að auk embættis síns geta þeir gegnt ýmsum öðrum störfum, sem talsvert gefa af sér. Ef þá langar til að bregða sér til skemtunar út í sveitir, nota þeir sér ýmiskonar atvik, láta sem svo, að þeir fari fyrir landið, og senda landssjóði ferðareikninga, og þá. ærið háa. Eg vil engar tölur nefna. Það er ekki langt síðan að landlæknir brá sér skemtiferð austur að Heklu, til þess að skoða eldana, og sagt er að hann hafi gert það á kostnað landsins.
Hæstv. ráðherra gat þess, að megn óánægja og óvild væri ríkjandi hjá alþýðu, bændum og búalýð, til embættismannanna; laun þeirra væru talin eftir o. s. frv.
Þetta er ekki rétt. Alþýða manna telur ekki launin eftir nytsömum embættismönnum sem gagn gera þjóðfélaginu, og kannast meira að segja við, að laun sumra þeirra séu of lág. Og ef nokkur óvild á sér stað, þá er ekki því um að kenna, að menn sjái eftir laununum. En vera má að annað gefi ástæðu til óvildar, og það er þetta: Það er eins og stjórnin sjái enga menn aðra en embættismennina, að þeim einum er hlúð, og við þá er alt miðað. Og embættismennirnir álíta sig eina hafa rétt til að ráða og regera, og telja sig eiga heimting á að búa við betri kjör en almenningur. Svo langt hefir þetta gengið, að embættismennirnir, með stjórnina í broddi fylkingar, dylja jafnvel hver með öðrum — eg vil ekki segja afbrot — en yfirsjónir og ávirðingar í embættisrekstrinum. Peningagræðgina, ráðríkið og ásælnina í fari embættismannanna hefir almenningur séð, og því er um að kenna, að hann lítur ekki með þeim virðingaraugum á embættismannastéttina, er vera bæri. Þetta frv. styður að því, að óánægjan vaxi, og þess vegna vil eg ekki að það gangi lengra.