06.08.1913
Neðri deild: 27. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 820 í C-deild Alþingistíðinda. (635)
128. mál, friðun fugla og eggja
Benedikt Sveinsson:
Efri deild er orðin fræg fyrir meðferð eina á þessum fuglafriðunar-frumvörpum. En henni hafa þó orðið allmjög mislagðar hendur um frágang á þessu frumv., þótt margt væri um það spjallað og nógar kæmi fram breytingartillögurnar við það þar í deildinni. Eg sé ekki betur en það megi heita hreinasti gallagripur eina og það kemur frá deildinni. Fyrst og fremst kemur frumvarpið í bág við æðarfuglafrumvarpið, því að eftir þessu frumv. er æðarfugl friðaður að eina frá 1. Apríl til 1. Ágúst. Og þessi tvö frumv. afgreiddi deildin þó sama daginn. Það stendur í 3. gr. frumv., að allar fuglategundir, sem hér (í frumv.) eru ekki taldar, skuli friðaðar vera frá 1. Apríl til 1. Ágúst. En í frumv. er æðarfugl ekki talinn áður og leiðir þá af því, að hann heyrir undir þá fugla, sem að eins eru friðaðir frá 1. Apríl til 1. Ágúst. Eg býst við, að enginn rengi þá skoðun mína, að æðarfugl sé þó »fuglategund«! Svo skal eg benda á annað. Það munu vera eitthvað um 10–20 ernir alls á landinu nú, eftir því sem kunnugastir fræðimenn segja. Þeir eru ekki friðaðir samkv. frumv., en aftur á móti er ætlast til að egg þeirra séu stranglega friðuð. Eg get ekki séð, að það sé neitt samræmi í þessu að friða arnareggin og leggja þung víti við að þau. séu tekin, en láta arnarungana réttdræpa nýskriðna úr egginu. Eg bendi að eins á þetta til að sýna fram á, hve flausturslega
Ed. hefir gengið frá þessu frumv., þrátt fyrir ina miklu fyrirhöfn og heilabrot, sem hi9n hefir haft um það.