08.08.1913
Neðri deild: 29. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 856 í C-deild Alþingistíðinda. (689)

43. mál, samþykktir um hringnótaveiði

Framsögum. minni hl. (Matthías Ólafsson):

Nefndin hefir lagt til að gera ýmsar breytingar á frumv., er gera það miklu aðgengilegra í mínum augum, og mun eg greiða atkvæði með öllum breyt.till. En þrátt fyrir það er skoðun mín á frumvarpinu í heild sinni engan veginn breytt, og mun eg greiða atkvæði á móti því, en óska nafnakalls í atkv.gr.