08.08.1913
Neðri deild: 29. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 861 í C-deild Alþingistíðinda. (702)

33. mál, málaflutningsmenn við landsyfirréttinn í Reykjavík

Framsögum. (Kistján Jónsson):

Fyrir mitt leyti legg eg ekki mikla áherzlu á þessa breyt.till. nefndarinnar. En jafnframt get eg sagt það, að eg tel eigi verulega mikið varið í málið í heild sinni. Það er í raun og veru ekki mikilsvert. En það, að eg hallaðist að breyt.tillögunni, kom til af því, að eg bjóst við að málið myndi að öðrum kosti eiga allerfitt uppdráttar hér í deildinni. Líka ber þess að gæta, að breyt.till. á sér mörg fordæmi í svipuðum eldri lögum, sem samþykt hafa verið hér á þingi, og er vitnað til laga þessara í nefndarálitinu. Get eg eigi álitið varhugaverðara að gera slíka undanþágu nú en þá.