11.08.1913
Neðri deild: 31. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 872 í C-deild Alþingistíðinda. (718)

57. mál, girðingar

Framsögum. (Eggert Pálsson):

Eins og háttv. þingdeildarmenn mun reka minni til, var atkvæðagreiðslan um þeta mál nokkuð ruglingsleg við 2. umr. Af því leiddi, að töluvert ósamræmi komst inn í greinarnar. Nú hefir nefndin viljað koma aftur samræmi á milli greinanna, og hefir því leyft sér að koma fram með breyt.till. á þgskj. 334. Nefndin lítur svo á, að ef þessar breyt.till. verða samþyktar, verði frumvarpið lýtalítið, þar sem það aftur á móti geti ekki talizt að vera það eins og það er nú. Í 9. gr. er t. d. þannig komist að orði:

Vilji maður girða beint, og þarf til þess inn á annars manna land, þá er það það því að eins heimiit, að til komi samþykki jarðeiganda og ábúanda þeirrar jarðar.

Eins og hverjum manni er augljóst, er hér í þessari málsgrein að ræða um atriði, sem enga lagasetningu þarf um. Ef allir hlutaðeigendur eru sammála, þá þarf vítanlega ekki neinna lagaákvæða með, hvorki í þessum efnum né öðrum. Það er fyrst, er menn greinir á, að þörf verður á lagaákvæðunum.

Meiri hl. nefndarinnar litur nú svo á, að nauðsynlegt sé að fá lagaákvæðí um, að hægt sé að koma í framkvæmd beinum girðingum, þótt ekki náist beint samþykki beggja málsaðila. Landamæri jarðanna liggja oft, eins og allir vita, í svo miklum krókum og bugðum að illmögulegt er að girða, ef öllum krókunum þarf að fylgja, auk þess sem það má teljast með öllu óþarfi. Vilji maður því girða beint, og þarf til þess inn á annara manns land, en fær ekki samþykki eigandana eða ábúandans til þess, þá finst nefndinni sanngjarnt, að ekki sé loku fyrir það skotið að maðurinn geri samt sem áður girt beint, heldur séu úttektarmenn látnir ákveða hvar girðinguna ekal setja og meta skaðabætur, ef meira er tekið af landi nábúans, en hins, sem girða vill. Eg vona að allir háttv. þm., sem athuga þetta, sjái, að slíkt ákvæði er með öllu nauðsynlegt til þess að girðingar geti komist í framkvæmd, þar sem svo til hagar sem hér er ákveðið.

Breyt.till. háttv. þm. Dal. (B. J.), að síðari málsgrein 9. liðar falli burtu, álítur meiri hluti nefndarinnar mjög óheppilega. Með breyt.till. er loku fyrir það skotið að hægt sé að girða þar sem mörkin liggja öll í krókum, eins og oft á sér stað, sérstaklega þar sem lækir eða gamlir farvegir ráða mörkum. Meiri hluti nefndarinnar leggur því til að þessi málsgrein falli ekki niður, heldur Verði haldið í breyttri og eðlilegri mynd eins og 2. liðurinn í breytingartillögum hans gerir ráð fyrir.

Í 3. breyt.till. nefndarinnar á þgskj. 334, vildi nefndin sneiða sem næst ákvæðum vegalaganna. Áleit meiri hl. nefndarinnar enga ástæðu til þess að breyta þeim með þessu lagaboði. En á hina hliðina fer breyt.till. á þgskj. 320 frá, háttv. þm. A.-Sk. (Þ. J.) og háttv. þm. Dal. (B.J.) fram á gagngerða breytingu á vegalögunum í þessum efnum. Og leggur því meiri hluti nefndarinnar til að sú breyt.till. verði feld, og að ákvæðin í vegalögunum, að því er snertir hlið á girðingunum, fái að standa óbreytt.

4. liður breyt.till. á þgskj. 334 er til þess ætlaður að gera mönnum kleift að fara óhindrað um sleðabrautir að vetrarlagi. Á það helzt við á Norðurlandi, þar sem miklar eru aleðaferðir. Leggur nefndin því til, að þar sem girt er yfir sleðabraut, verði hlið að vera á og ekki megi loka hliðinu eða á annan hátt hindra umferð manna eftir slíkum brautum með því að þvergirða þær svo að ekkert hlið sé á þeim haft.

Annara skil eg ekki annað en að hv. deild fallist á þessar breytingartillögur meiri hluta nefndarinnar. Ef nokkur ágreiningur verður, býst eg helzt við að hann verði um 3. liðinn á breyt.till. á þgskj 234 eða breyt.till. á þgskj. 320 um sama efni, þar sem er að ræða um það, hvort með þessum lögum eigi að breyta ákvæðum vegalaganna eða ekki. Meiri hluti nefndarinnar vill ekki að það verði gert og vona eg að þeir verði fleiri meðal háttv. þingdeildarmanna, sem fallast á það.