07.07.1913
Neðri deild: 5. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 87 í C-deild Alþingistíðinda. (73)

9. mál, laun hreppstjóra

Ráðherrann (H. H.):

Þetta frv. stendur í nánu sambandi við frv., sem rætt var hér í gær í deildinni, nefnil. frv. um tekjuskatt. Samkvæmt því frv. á að afnema ábúðar- og lausafjárskatt, en laun hreppstjóra hafa hingað til verið miðuð við ábúðar- og lausafjárhundruð. Verði frv. um tekjuskatt samþykt, þá liggur í augum uppi að ný ákvæði þarf að setja um laun hreppstjóra. Eg vona að hv. þm. hafi nú fengið í hendur álitsskjal skattamálanefndarinnar frá 1908. Þar fást allar upplýsingar þessu máli viðvíkjandi — þær eru ekki umfangsmiklar, því að málið er afar einfalt og óbrotið. Eg býst við að háttv. þm. Stjk. (V. G.) sakni í þessu máli skýrslu og samanburðar á launum hreppstjóra annara landa, en því miður get eg ekki látið honum hana í té, því mér er ekki kunnugt um, hvort alveg samsvarandi embættismenn eru þar til. Um hreppstjóralaunin hér er það annars sannast að segja, að þau eru engin í þeim skilningi, sem talað er um embættismannalaun. Þessi litla þóknun, sem nefnd er hreppstjóralaun, er að eins lítilfjörleg borgun upp í útgjöld, sem þeir hafa til að kaupa pappír, ritföng o. s. frv. Og að öðru leyti fá þeir eins og kunnugt er dálitla borgun fyrir hvert réttarverk, er þeir Vinna, eftir sérstökum lögum.

Hve miklu hækkunin nemi, er hægt að reikna út. Nú eru áætlaðar 8000 kr. á fjárlögunum — en af þeirri upphæð hafa ekki verið notaðar nema 7683 kr. Eg býst við að eftir þessu frv. muni upphæðin verða 8500 kr., þegar öll kurl koma til grafar, svo að ekki setur sú uppfærsla landssjóðinn á höfuðið.