11.08.1913
Neðri deild: 31. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 893 í C-deild Alþingistíðinda. (737)
21. mál, íslenskur sérfáni
Ráðherrann (H. H.). Eg er samþykkur meiri hluta nefndarinnar um það, að tillögur minni hlutans geti alls ekki á neinn hátt komið til greina og að eigi sé til neins að lengja umræðurnar um þær. En þrátt fyrir það er eg alls eigi ánægður með frumv., sem meiri hlutinn hefir lagt fyrir þingið.
Það sem aðallega er talið tilefni til þessa frumvarps, er, að foringinn á Fálkanum tók bláhvítt smáflagg af bát hér á höfninni. Nú liggur fyrir yfirlýsing frá forsætisráðherranum danska, að foringinn hafi ekki unnið þetta verk eftir skipun frá yfirboðurum hans. En sá orðrómur hafði verið breiddur út hér um bæinn, að hann hefði unnið eftir æðri skipunum, hvernig sem á þeim orðrómi stendur. Mun það hafa vakið óhug hjá mönnum; en hér er að eins um skilning sjóliðsforingjans sjálfs á gömlu lagaákvæði eða gömlu almennu »inatruxi« (fyrir sjóliðið) að tala. Finst mér þetta einstæða atvik vera of lítilfjörlegt tilefni til þess að löggjafar þjóðarinnar taki slíkan fjörkipp, sízt eins mikinn og háttv. framsögum. minni hl. (Sk. Th.) ætlast til.
Annað, sem eg hefi á móti frumv., er hvað undirbúningur þess er lélegur. Við vitum allir, að í hvaða landi sem er, þar sem konungur situr að völdum, verður að taka tillit til hans þegar rætt er um jafnviðkvæmt mál og að lögilda nýtt flagg. Konungur vor er engin undantekning í þessu efni. Það hefði verið sjálfsagt að eiga fyrst tal við hann um þetta mál, að minsta kosti láta hann vita af því, að lögin væru í brugggerð, og þó ekki væri nema fyrir kurteisis sakir eiga tal við hann um málið, einnig um gerð flaggsins. En til þess hefir ekki verið neitt tóm né tækifæri. Eins og alt er í garðinn búið, álít eg óheppilegt fyrir málið sjálft, að þvinga frumv. í gegn nú á þessu þingi.
Þetta atriði held eg að menn hafi ekki athugað nægilega. Vona eg svo góðs af háttv. deild, að hún komist að þeirri niðurstöðu, að betra sé að málið sé óafgert nú, heldur en að halda því nú til streitu.
Frumvarpið hefir sumpart batnað í höndum nefndarinnar, Sumpart versnað. Það hefir batnað að því leyti, að nefndhefir fallið frá þeirri ókurteisi, að ætla konunginum að samþykkja lög um flagg án þess að hann einu sinni fái að vita, hver gerð þess eigi að vera. Nú er tiltekin gerðin. Þetta er til bóta, en þó er nokkuð við það athugavert. Nefndarálitinu ber sem sé ekki saman við frumv. um gerðina. Í frumv. stendur, flaggið skuli vera blátt með hvítum krossi, og getur enginn á frumv. séð annað en meiningin sé að halda þeirri gerð, sem nú tíðkast á inum svonefnda »stúdentafána«, en í nefndarálitinu stendur, að blái liturinn eigi að vera dekkri en hann nú er hafður í »bláhvíta fánanum«. Ef þetta á svo að verða, þá er alveg nauðsynlegt að það sé tekið fram í lögunum, að liturinn eigi að að vera dökkblár, sem mundi bæta úr þeirri mótbáru, að fáninn sé eins og gríski aðmíralsfáninn. En að öðru leyti hefir frumv. versnað í nefndinni. Sérstaklega er sú breyting, að setja »landsfána« í stað »staðarfána«, til hins verra. »Landsfáni« er orð, sem þarf skýringar við, af því að það hefir aldrei verið notað áður, og leggja má í það margs konar merkingu. Það er því nauðsynlegra að afmarka í lögunum, hvernig megi nota þann fána, sem tvíveðrungur er í nefndarálitinu um það atriði. Þar er af annari hálfu gefið í skyn, að þetta sé engin efnisbreyting, en hins vegar stendur, að nauðsynlegt sé að löggilda flaggið, til þess það megi blakta í friði »innan íslenzks valdsvæðis«. En eins og háttv. framsögum. minni hl. (Sk. Th.) tók fram, rekur þetta sig á gildandi lög. Ef »landsfáni« á að skiljast sem »sérfáni« og ekki siglingafáni, hvernig á hann þá án lagabreytingar að geta »blaktað í friði« á þeim hluta íslenzka löggjafarsvæðis, sem nefnist landhelgi? Eða er það ef til vill meining höfundarins að nefndarálitinu, að landhelgissvæðið við Ísland heyri ekki undir »íslenzkt valdsvið«? Hann veit þó sjálfsagt, að eftir gildandi lögum má nú ekki nota annan fána við siglingar á landhelgissvæðinu, heldur en inn almenna ríkisfána, rauðan með hvítum krossi. Á þá »landsfáninn« að notast þar líka, eða hvað?
Mér finst yfirleitt, að frumv. eins og það liggur fyrir, sé altof óskýrt. Það vantar allar ránari reglur í það. Það er til dæmis ekkert sagt um það, hvort ætlast er til þess að fáninn verði notaður á opinberum byggingum, þar sem hingað til hefir verið á,litið sjálfsagt að nota ríkisfánann, og er þetta þó alls ekki ómerkilegt atriði.