11.08.1913
Neðri deild: 31. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 901 í C-deild Alþingistíðinda. (739)

21. mál, íslenskur sérfáni

Bjarni Jónsson:

Réttur Íslendinga til þess að hafa siglingafána er nú orðinn svo kunnur að eg þekki engan, sem þorir að halda því fram, að við eigum hann ekki. Rétturinn til þess að vera sjálfstætt ríki og rétturinn til þess að hafa siglingafána fara saman. Hér er nú borið fram frumvarp um fána en ekki siglingafána; og hvers vegna er ekki farið fram á siglingafána? Af því að menn eru svo hræddir um að konungur neiti því. Þetta getur verið, en það er óreynt, og ekki hefir verið svo mikið sem talað um þetta við konung.

Mér skildist svo á hæstv, ráðherra, að hann mundi hafa talað um þetta við konunginn, ef það hefði komið fyrri fram. Hann hefði þó mátt muna, að á þinginu 1909 var samþykt hér í deildinni frumvarp um siglingafána samhljóða okkar frumvarpi nú og tillögum minni hlutans, og því gat hann búist við að það gæti komið fyrir að slíkt frumvarp yrði samþykt og því átt að tala um þetta við konung, svo að við hefðum getað heyrt svör hans hér fyrirfram. Annars finst mér að menn leggi of mikið upp ár fyrirfram gefnum svörum. Eg fyrir mitt leyti legg ekki mikið upp úr þeim. Menn geta og gera oft að skifta skoðun þegar á herðir; og það er töluvert annað að hafa á móti máli fyrirfram og að spyrna á móti því þegar það er komið fram, ekki sízt þegar það er nauðsyn, sem hefir valdið framgöngu þess. Hér í þessu máli liggur fyrir nauðsyn og konungur getur ekki spornað við því til lengdar að það komist fram. En hvernig á nú að fá þessu framgengt? Hvernig eiga Íslendingar að koma því til leiðar að þetta fáist? Er þetta frumvarp meiri hlutans nokkurt spor í áttina ? Eða er það spor í öfuga átt? Háttv. 1. þm. Rvk. (L. H. B.) sagði, að þetta frumvarp væri komið fram vegna fánatökunnar hér 12 Júní og að nauðsynlegt væri að Íslendingar fengu uppreisn fyrir það ofbeldisverk.

Þetta er laukrétt, að nauðsyn sé á fánalögum til þess að fyrirbyggja að slík ofbeldisverk verði framin framvegis, og eins hitt, að Íslendingar heimta uppreisn fyrir það að útlendingar gerðu sig að húsbændum hér og svívirtu okkar eigið flagg. En hvorugt af þessu er gert með frumv. meiri hlutans. Enginn maður heldur því fram, að lögleg hafi verið fánatakan, svo að ekki þarf neitt að fyrirbyggja. Og hvað uppreisninni viðvíkur, þá er hún engin þótt við fáum þennan bleðil, sem meiri hlutinn fer fram á. Nei, hér er að eins verið að fara fram á, að við sýnum á okkur skattlandssvuntuna.

Þetta meirihluta-frumv. er að engu nýtt og til einskis gagns, nema til þess að búa til skíðabraut fyrir háttv. l. þm. Rvk. (L. H. B.) til þess að renna sér á rassinum á út úr þessu máli, og ofan af þeirri hæð, sem hann komst á 12. Júní.

Enginn getur litið öðruvís á, en að það sé góðvild af vissu tagi, sem stjórnar því að þetta frumv. meiri hlutans er þannig úr garði gert. Hér er auðsjáanlega verið að búa til veiðigröf til þess að láta fánamálið falla í. Ef þessi deild samþykkir þetta frumv. meiri hlutans. þá tekur hún aftur samþykt sína frá 1909, og þá er auðsætt, að hér er stigið spor í öfuga en ekki rétta átt.

Skrítið fanst mér að heyra háttv. 1. Rvk. (L. H. B.) vitna í Knud Berlin til stuðnings sínu máli. Verði honum að góðu. En Berlín segir annars, að ekkert geri til þótt þetta komist í gegn, því að það sé engin bót að því, og það er satt; því að þetta frumv. er bara til ilis eins, því að það gerir gleðina út af tilvonandi siglingafána að engu. Það gerir líka meira, það gerir vonina um hann að engu. Það markar afeyrt á alla von um hann.

Eg býst nú við, að þessi frumvarpsómynd komist í gegnum þessa deild og verði svo svæft í efri deild, og hvar er þá árangurinn af 12. Júní?

Hann er enginn annar en sá, að Nd. hefir gert að engu samþykt sína 1909. Eg vona nú, að ef Knútur Berlin fréttir um þessi orð mín hér í dag, þá geri hann ekki háttv. 1. þm. Rvk. (L. H. B.) oftar þá, óvirðingu að jafna honum til mín. (Lárus H. Bjarnason.: Eg tók það sem virðingu). Það er tíminn, góur, sagði einn kennari í minni tíð í skóla. Og svo er um þetta. að það er tíminn, sem segir til, hvernig orðin eiga að skiljast. Hann (Knútur Berlín) telur mér heiðurinn af því, hvernig fánatökunni var tekið hér í Reykjavík. Eg vona að hann hafi einhvern tíma tækifæri til þess að blanda mér með meiri sanni inn í það mál.

Mín krafa er sú, að íslenzk skip sigli undir íslenzkum fána, og við þá kröfu mun eg standa meðan eg stend uppi og aldrei af láta.