07.07.1913
Neðri deild: 5. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 88 í C-deild Alþingistíðinda. (74)

9. mál, laun hreppstjóra

Pétur Jónsson:

Vegna þess að þetta mál stendur í nánu sambandi við frv. um tekjuskatt — enn þá nánara en við launamálin — þá leyfi eg mér að stinga upp á því að því verði vísað til skattamálanefndarinnar.