11.08.1913
Neðri deild: 31. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 928 í C-deild Alþingistíðinda. (750)
27. mál, vatnsveitingar
Frams.m. (Sigurður Sigurðsson):
Á Alþingi 1913 var samþykt tillaga um, að skora á stjórnina að leggja fyrir næsta Alþingi frumv. til laga um vatnsveitingar. Stjórnin varð við þessari áskorun, en fór þess á leit við Búnaðarfélag Íslands, að það gerði uppkast að frumv. til slíkra áveitulaga. Stjórn Búnaðarfélagsins varð við þeirri ósk og samdi frumv., sem stjórnin síðan hefir yfir farið og endurbætt á ýmsan veg. Stjórnin lagði svo frumvarpið fyrir Ed. Alþingis. Var málið þar sett í nefnd og gerðar á því nokkrar breytingar.
Síðan hefir þetta frumv. verið athugað í landbúnaðarnefndinni og verður ekki annað sagt, en að málið hafi þannig fengið. allrækilegan undirbúning.
Nokkrar breytingar leggur nefndin til að gerðar séu við frumvarpið, en flestar þeirra eru annaðhvort orðabreytingar eða skifta engu máli um efni frumv. og miða aðallega til skýringar á því eða til að laga málið. Var nefndin sammála um flestar eða allar greinar frumvarpsins, nema 18. greinina. Þar urðu 2 nefndarmennirnir viðskila og skrifuðu undir nefndarálitið með fyrirvara. Komu þeir fram með breytingartillögu á þgskj. 312 í þá átt, að numin sé úr gildi eignarnámaheimildin, sem frumvarpið veitir stjórn samáveitunnar, vilji hvorki landsdrottinn né leiguliði leggja fram áveitukostnaðinn, og í stað þess skuli taka kostnaðinn lögtaki hjá leiguliðunum.
Meiri hluti nefndarinnar lítur svo á, að verði þessi br.till. samþykt, sé frumvarpið orið stórskemt. Ákvæðið, sem minni hl. vill nema burt, telur meiri hluti nefndarinnar hættulítið eða hættulaust, en aftur á máti mjög nauðsynlegt.
Bæði hjá okkur og í útlöndum, t.d. Noregi, eru svona ákvæði í lögum ekki neitt fátið. Hér, hjá okkur eru til enn þá víðtækari eignanámsákvæði, en þetta, og get eg því til sönnunar mint á fossalögin frá 22. Nóv. 1907, 12. gr.
Annars skal eg ekki fjölyrða um þetta mál. Það hefir verið svo vel undirbúið, og nefndin hefir orðið sammála um öll atriðin, nema þetta eina að fella í burtu 18. gr. En það telur meiri hl. nefndarinnar mjög misráðið og frumv. stórapilt, verði eignanámaheimildin feld í burtu.
Vona eg svo að háttv. deild taki vel þessu mikilsverða máli, samþykki þessar smábreytingar á frumv. og felli br.till. minni hlutans.