11.08.1913
Neðri deild: 31. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 935 í C-deild Alþingistíðinda. (761)

104. mál, heimild fyrir veðdeild Landsbankans að gefa út (serie) bankavaxtabréfa

Framsögum. (Björn Kristjánsson):

Að eins örfá orð út af ræðu hv. 2. þm. Húnv. (Tr. B.). Eg álít rétt, að það komi þegar fram við 1. umræðu, hvernig þessu er háttað, svo að þingmenn geti kynt sér það, og komi ekki fram með breytingartillögur að ófyrirsynju.

Háttv. þingmaður taldi það varhugavert, að heimtað er 1% gjald af lánsupphæðinni í varasjóð veðdeildarinnar um leið og lánið er tekið. Ef hann hefði kynt sér nefndarálitið, hefði hann getað séð, að þetta er ekki gripið úr lausu lofti, heldur er hér farið að dæmi lánsfélaganna dönsku, sem alment eru talin að vera hrein fyrirmynd. Hér er einungis farið enn vægara í sakirnar, því að dönsku lánsfélögin hafa þetta gjald helmingi hærra. Og þegar því er slept, að veðdeildinni Sé gert að skyldu að hafa 1/6 af þeim bréfum, sem í umferð eru. fyrirliggjandi í verðbréfum sem tryggingu, þá er augljóst að eitthvað verður að koma í staðinn.

Hitt, er nefndin ætlast til, að þegar eigandaskifti verða, þá greiði kaupandinn helmingi hærra gjald, eða 2% af því sem eftir stendur af láninu í varasjóð, á að miða til þess að draga dálítið úr því verzlunarbraski með fasteignir, sem hér er farið að tíðkast, og sem gengur næst því að heita fjárglæfrar. Þetta ætti að verða dálítið band á því að fasteignir yrðu seldar svo að segja annan hvern dag, enda er þetta ekki hærra gjald en heimtað er af lánsfélögunum dönsku, sem alstaðar eru talin fyrirmynd.

Að gjald þetta tvöfaldist ef vanrækt er að láta veðdeildina víta um eigandaskiftin, er bygt á þeirri reynslu, að fasteignasöluprangarar fara ávalt á bak við veðdeildirnar með þetta. Það hefir oft komið fyrir, að fasteign hefir verið seld þrisvar eða enn oftar, áður en veðdeildin hefir haft hugmynd um það. Þetta á að reyna að fyrirbyggja það.

Af þessum ástæðum, sem eg hefi nú greint, getur nefndin ekki fallið frá þessum atriðum þó að breyt.till. kæmi fram um það.