12.08.1913
Neðri deild: 32. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 953 í C-deild Alþingistíðinda. (774)

42. mál, stofnun landhelgissjóðs Íslands

Ráðherrann (H H.):

Eg var staddur í Ed. og heyrði ekki röksemdir háttv. 2. þm. G.-g. (gr. D.). Eg heyrði að eins að hann Var að mæla móti breytingartillögunni. Eg er viss um að óhætt er að senda frumvarpið til Ed. aftur og eg sé því ekki af þeirri ástæðu neitt á móti því að tillagan sé samþykt. Eins og frumvarpið er nú úr garði gert, getur það valdið misskilningi og deilum sem breytingartillagan fyrirbyggir. Úr því hún ekki víkur frá tilgangi flutningsmanns frumvarpsins, tel eg sjálfsagt að hún verði samþykt. Eg er þakklátur nefndinni að hún tók athugasemd mína til greina.