12.08.1913
Neðri deild: 32. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 955 í C-deild Alþingistíðinda. (782)

36. mál, nafnabreytingar og ný nöfn á býlum

Framsm. (Jón Ólafsson):

Herra forseti ! Þetta er misskilningur hjá hæstv. ráðherra. Í gamla daga var sá sem óskaði að gefa nafn vanur að gefa líka nafnestina, til þess að hinn þægi nafnið. Hér víkur öðruvís við. Stjórnarráðið óskar ekki að gefa nafnið, heldur óskar eigandi jarðarinnar eftir að fá það.

Mér finst mjög leiðinlegt að vera að lögfesta miður rétta, eða að minsta kosti óvanalega og vafasama merkingu á jafngömlu orði sem þessu.