12.08.1913
Neðri deild: 32. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 965 í C-deild Alþingistíðinda. (794)
29. mál, ritsíma- og talsímakerfi Íslands
Bjarni Jónsson:
Mér kemur það óvart að heyra. undirtektir hæstv. ráðherra undir svona meinlausa sanngirnistillögu. En þar sem hæstv. ráðherra reyndi að draga úr áhrifum tillögunnar með því, að hún hefði verið feld hér í fyrra, þá skal eg að vísu játa, að það er rétt. En þrátt fyrir það get eg ekki annað séð, en fult von geti verið til þess að þeir sömu menn, sem greiddu atkvæði á móti henni í fyrra, greiði atkvæði með henni nú. Eg hefi séð þessa sömu deild samþykkja fyrir nokkrum dögum við 2. umræðu með nafnakalli, með 14 atkvæðum, atriði, sem við 3. umr. fengust ekki nema 7 atkv. með, og höfðu þó ástæður að engu leyti breyzt. Hefði málið komið til 4. umr., þá hefði að líkindum ekkert atkvæði verið eftir af þessum 14.