12.08.1913
Neðri deild: 32. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 971 í C-deild Alþingistíðinda. (799)

29. mál, ritsíma- og talsímakerfi Íslands

Benedikt Sveinsson:

Hæstvirtur ráðherra vildi ekki gera mikið úr því, að það íþyngdi héruðunum mikið að bera þau gjöld, sem þau borga til símans. Hann kom með samanburð til þess að sýna, hve lítt símakostnaðurinn kæmi niður á héruðunum; þau hefðu borgað að eins rúmar 90 þúsundir kr. af kostnaðinum, sem alls væri talsvert á aðra milíón. En þessi samanburður var mjög viljandj, því að ráðherra leit að eins á þá síma, sem lagðir hafa verið, en mestur hluti þeirra er einmitt í fyrsta flokki. Símar þeir, sem hér eftir verða lagðir, eru miklu fleiri annars og þriðja flokks símar og þess vegna verður kostnaðurinn hér eftir hlutfallslega miklu meiri á héruðunum. Það er engan veginn svo, að hagræðið af símalagningu komi einungis því héraði til góða, sem siminn liggur um, heldur er það til góðs fyrir alt landið. Aðalvíkursíminn verður t. d. ekki nema að litlu leyti til hagsmuna fyrir Aðalvíkinga, heldur miklu fremur fyrir Reykvíkinga og aðra, sem stunda útgerð þar vestra. Botnvörpuskipin stunda veiðar úti fyrir Aðalvík einkum á vetrum, leita þráfaldlega hafnar á Látrum, og er þeim þá hagfelt að geta látið vita um afla sinn og fá fregnir héðan að sunnan. En hér í þinginu virðist vera lítið svo á, að hagurinn sé eingöngu fyrir hérað það sem síminn liggur um.

Ef það ætti að vera grundvallarregla, að þeir símar einir, sem borga sig, skuli vera fyrsta flokks símar, þá er sá grundvöllur ærið hvikull, því að sími, sá er nú kann að borga sig vel, getur hætt að borga eig eftir nokkur ár, og eins geta þeir símar borgað sig ágætlega síðar, sem skaði er að fyrst í stað. Landssjóður ætti því sjálfur að kosta alla símana, en ekki sýslufélögin, enda fær hann allar tekjurnar. Kostnaðurinn, sem lagður er á sýslufélögin, er mjög óvinsæll, og stuðlar til þess að eilífar beiðnir úr öllum áttum streyma til þingsins um uppgjöf á þessu óréttláta gjaldi, eins og reynslan hefir þegar margsýnt.

Hæstv. ráðherra gerði sér mikið far um að sýna fram á að hér væri ekki um veðsetningu á tekjum símana að ræða. Þó að ekki liggi bein veðsetning í frumvarpinu sjálfu, þá er þar þó gefin heimild til veðsetningar. Og það er sama sem fullkomin veðsetning, þar sem þetta er sett sem skilyrði fyrir því að lánið fáist.

»Stóra norræna« hefir sett það upp, að þetta yrði sett í lögin, og það ber ekki vitni um annað en gersamlegt vantraust á landinu hjá þessu félagi til að borga lánið. Það er sams konar traust, eins og stórveldin hafa haft á Tyrkjum og Austur-Asíuþjóðunum, og ættum við ekki að skáka okkur í þeirra tölu. Vantraustið lýsir sér enn áþreifanlegar í þessu fyrir þá sök, að samkvæmt því sem hæstv. ráðherra hefir kannast við, þá, er það einmitt í eigin hagsmuna skyni sem félagið vill lána þetta fé. Það sér hag sinn í því, að sæsíminn verður því meira notaður sem símar liggja víðar um landið. Þessi arðavon félagsins ætti að vera því nægileg jafnframt því sem það kemur fé sínu á sæmilega vöxtu í jafngóðum skuldastað sem hjá landssjóði Íslands. — Úr því að »Stóra norræna« hefir slíki vantraust á landssjóði, má alveg eins búast við, að það trúi stjórninni ekki til þess að afhenda sér inn veðsetta tekjuafgang, sízt ef stjórnarskifti kynnu nú að verða einhverntíma á næstu þrjátíu árum, og þyrfti því að setja hingað tilsjónarmann, eins og gert hefir verið í Tyrklandi.

Þetta frumvarp er gallagripur; það er hvorki heilt né hálft og verður að eins til þess að gera ruglinginn enn meiri eftir en áður. Eg get því ekki annað séð, en að réttast sé að það verði felt.