12.08.1913
Neðri deild: 32. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 984 í C-deild Alþingistíðinda. (814)

106. mál, lánsdeild við Fiskveiðasjóð Íslands

Flutningsm. (Lárus H. Bjarnason):

Eins og hæstv. ráðherra kannaðist við, þá átti stjórnin að beita sér fyrir því, að stofnuð yrði lánsdeild við Fiskveiðasjóðinn. Þetta hefir stjórnin ekki gert, og því er ekki hægt að neita því, að hér hafi nokkur vanræksla átt sér stað. En sú ástæða stjórnarinnar fyrir viðleitnarleysinu í að stofna lánadeildina, að vaxtabréfin myndu hafa reynst óseljanleg, byggist á getspám, og er því ekki haldgóð. Sé það satt, sem háttv. 1. þm. G.-K. (B. Kr.) sagði um sölu bankavaxtabréfa Landsbankans, og sem eg hefi enga ástæðu til að rengja, þar sem hann er forstjóri bankans, þá sýnir það, að íslenzk verðbréf eru ekki óúgengileg, hvorki utanlands né innan, enda hefði stjórnin getað keypt vaxtabréf deildarinnar fyrir opinbert fé samkvæmt 12. gr. laganna og með því stuðlað eigi alllítið að því, að að gera bréfin útgengileg einnig til handa öðrum.

Hæstv. ráðherra spurði, hvort eg væri á móti því, að fresturinn yrði framlengdur til 1917, Í stað 1915. Það hefi eg ekki. Mér er sama þó að fresturinn verði framlengdur til 1917 eða 1919. Frumvarpið er að eins fram komið til þess að stjórnin geti fullnægt skyldu einni samkvæmt lánsdeildarlögunum og þar með hjálpa útvegsmönnum.