13.08.1913
Neðri deild: 33. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 998 í C-deild Alþingistíðinda. (826)

1. mál, fjárlög 1914 og 1915

Framsögum. (Pétur Jónsson):

Eg ætla ekki að halda neina langa ræðu. Eg ætla að eina að gefa ofurlítið yfirlit yfir breyt.till. nefndarinnar við fjárlaga frumvarp stjórnarinnar. Viðvíkjandi tekjubálknum hefir nefndin leyft sér að áætla tekjurnar nokkuð hærri og munar sérstaklega á einum tollstofninum, vörutollinum. Þessi munur er 128 þús. kr. Að vísu er þetta ekki annað en tölutilfærsla, því að í rauninni verða tekjurnar jafnháar, hvort sem þær eru áætlaðar það eða það.

Enn fremur hefir nefndin komist að þeirri niðurstöðu, að draga út eina tekjugreinina, afborganir viðlagasjóðs, er nema 116 þús. króna. Þetta hefir sömuleiðis enga fjárhagslega þýðingu; þegar þessi upphæð er dregin frá, verður tekjuhækkunin eftir áætlun nefndarinnar ekki nema 12 þús. krónur.

Þar á móti er gjaldahækkunin samkv. tillögum nefndarinnar allmikil. Hún nemur alis um 258 þús. kr. Aftur á móti lækkar nefndin gjaldaliðinn í frv. stjórnarinnar um 28 þús. kr., svo mismunurinn er 230 þús. kr., sem gjöldin hækka um, ef allar tillögur nefndarinnar verða samþyktar og engar aðrar.

Þar sem nefndin hefir fært til tölurnar tekju megin hefir það, eins og eg sagði, áðan, enga fjárhagslega þýðingu í reyndinni. En þetta hefir fjárhagslega þýðingu.

Ef tillögur nefndarinnar yrðu samþyktar, yrði niðurstaðan þessi í heild sinni:

Gjöldin eru samkvæmt stjórnarfrumv. 3,063,314 kr., eftir tillögum nefndarinnar netto 3,292,944 kr. En tekjurnar geta ekki eftir áætlun nefndarinnar numið nema 3,151,000 kr. Tekjuhalli yrði þá um 142 þús. kr. Ekki þori eg að ábyrgjast að þetta sé nákvæmlega rétt reiknað, en það mun ekki skakka miklu.

Þá er að líta á það, hvernig þetta kemur við fjárhaginn eins og hann er, þegar fjárlögin taka við í lok þessa árs. Menn hafa fyrst og fremst gott yfirlit í ræðu hæstv. ráðherra, sem hann hélt er hann lagði fjárlagafrumvarpið fyrir þingið. Eftir frumvarpið til samþyktar á landsreikningunum, sem fyrir liggur, er mönnum kunnugt um, að peningaforði landasjóðs var í árslok 1911 hátt á 7. hundrað þúsund krónur. Liggur það reyndar mest í því, að veðdeildarbréf landssjóðs, sem keypt voru fyrir landið frá 1909, voru seld og er því að miklu leyti lánsfé. En hvað um það, stjórninni voru gefnar rýmri hendur vegna þess að svona stóð á í árslok 1911.

Við sjáum á skýrslu hæstv. ráðherra fyrir árin 1912–'13, að það lítur út fyrir töluverðan tekjuafgang við lok þessa fjárhagstímabils. Stjórnin hefir áætlað hann 140 þús. kr., og nægja fyrir því sem nú verður veitt á fjáraukalögum fyrir 1912–13. En tekjurnar 1913 hafa reynst meiri en þar var áætlað. Maður getur því talið að þetta fjárhagstímabil muni bera sig allvel.

Mér er óhætt að bæta því við, eftir því sem síðar hefir komið fram, að vörutollurinn mun hækka um 50 til 100 þús. kr. frá því, sem stjórnin hefir áætlað. Auk þess geta menn vænst meiri tekjuafgangs á þessu ári.

Allar þessar ástæður, sem nefndin hefir tekið tillit til, hafa gefið henni djörfung til að koma með tillögur um svona mikla gjaldahækkun. Auk þess lágu skattafrumv. fyrir þinginu þann tíma, sem nefndin sat að störfum. Þá var að vísu eigi nærri útséð um afdrif þeirra, en meiri hluti nefndarinnar var með þeim og gerði okkur djarfari, þótt tekjuaukinn eftir þeim hefði að vísu eigi orðið mikill. Svo bætist það við, að aðsóknin að fjárlaganefndinni utan að, til að fá breytingar, er öll á eina sveif. Menn sjá, hvílíkur fjöldi af málaleitunum og tillögum liggur fvrir þinginu og allar eru þær á þá leið, að fá útgjöldin hækkuð. Það hefir ekki úr neinni átt komið tillaga til nefndarinnar um að spara. Þrýstingin er öll á eina hlið. Jafnvel múrveggir geta hallast þegar þrýstingin er stöðugt á aðra hliðina og engin á hina; en nú er nefndin enginn múrveggur, heldur að eins lausir steinar, sem þessir 4 flokkar í deildinni hafa kastað saman í eina hrúgu. Það er því afsakanlegt þó hún stæði ekki fast á móti ásóknunum um hækkun gjaldanna. — Þó skulu menn ekki treysta því að nefndin sé svo laus fyrir, að hún ekki þoli neinn þrýsting. Vona eg að hún haldi sæmilega saman um það sem hún hefir lagt til og láti ekki þoka sér stórum meira en orðið er og verði ekki svo afarlaus fyrir, sem samsetning hennar bendir til.

Þá ætla eg að eins lauslega að benda á, hvernig hækkanirnar og lækkanirnar koma niður, án þess að fara mikið út í einstök atriði.

11. gr. er hækkuð um 3000 kr. Til eftirlita með fiskiveiðum úr landi. —12. gr. Til heilbrigðismála eru útgjöldin hækkuð um 4400 kr.

13. gr. A. Til póstmála eru útgjöldin hækkuð um 30,000 kr. Þar á móti eru aftur sparaðar 4000 kr., svo hækkunin nemur alls 26,000 kr.

13. gr. B. Til vegamála eru útgjöldin hækkuð um 88,400 kr.

13. gr. D og E. Til síma og vita hafa útgjöldin Verið lækkuð um 4000 krónur.

14. gr. A. Til kirkjumála nemur hækkunin 22,000 kr. (til dómkirkjunnar 20 þús. kr.).

14. gr. B. Til kenslumála nemur hækkunin 32,780 kr., en þar á móti kemur sparnaður 5,700 kr., Svo hækkunin verður 27,000 kr.

15. gr. Til vísinda og lista eru útgjöldin hækkuð um 13,800 kr., en sparnaður er þar aftur á móti 10,800 kr. Hækkunin er þá þar 3000 kr.

16. gr. Til að efla atvinnuvegina hafa útgjöldin verið hækkuð um 63,300 kr., en sparnaður er þar á móti 3000 kr., svo hækkunin nemur 60,000 kr.

Menn sjá nú, fyrir hvaða málefni hækkanir nefndarinnar eru. Þær koma þannig niður, að pósthúsið og kirkjan fá 50 þús. kr.

Til veganna er mest lagt, um 88,000 kr. Þar næst til atvinnumála, um 60, 000 kr., og hefir sjávarútvegurinn einkum fengið rífan skerf þar og svo verzlunin.

Til kenslumálanna er svo lagt um 27000 kr. Hér er því verið við sama heygarðshornið og að undanförnu í samgöngur, atvinnumál og fræðslumál aðallega.

Eg hefi nú gefið stutt yfirlit yfir breytingar nefndarinnar og vona eg að mönnum nægi það. Eg skal svo ekki lengja umræðurnar að sinni. Vona eg að hv. deildin fari sanngjarnlega með tillögur nefndarinnar og taki tillit til þess, að víða var úr vöndu að ráða