13.08.1913
Neðri deild: 33. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1006 í C-deild Alþingistíðinda. (829)
1. mál, fjárlög 1914 og 1915
Benedikt Sveinsson:
Nú er rúmt ár liðið síðan ráðherra sá tók við völdum, er nú situr. Er þá nógu fróðlegt að líta á stefnuskrá hans, þau verkefni, er hann tók sér fyrir hendur að framkvæma, þegar hann settist í valdasætið, og athuga, hversu hann hefir int þau af hendi.
Það voru einkum þrjú ætlunarverk, er ráðherra kvaðst vilja beita sér fyrir, samkvæmt ræðu þeirri, sem hann flutti hér í þingdeildinni 23. Júlí 1912, um leið og hann tók við völdum:
Að efla frið í landinu.
Að auka lánstraust landsins erlendis og hjálpa þjóðinni til að neyta krafta sinna, og einkum að leiða sambandsmálið til sæmilegra lykta.
HVernig hefir honum tekist að framkvæma þessa stefnuskrá sína?
Fyrsta verkefnið: að efla frið í landinu og sameina kraftana hefir honum algerlega mistekist. Langbezta ráðið til þess að efla frið og samhug; en eyða viðsjám og sundrungu, var það að láta samningabraskið niður falla. En í þess stað fitjar ráðherra upp á þessu viðkvæma deilumáli, þvert ofan í loforð allra þingmanna við kjósendur landsins. Ávextirnir af starfi hans komu brátt í ljós, því að sjaldan hafa viðsjár verið öllu meiri en á þinginu 1912, þar sem ráðherra átti í sífeldum brösum við sína eigin flokksmenn. Og nú hefir ráðherra stofnað til meiri sundrungar á þinginu, en dæmi eru til í manna minnum: þingliðið tvístrað í fjóra flokka, og auk þess nokkra utanflokksmenn. Öll samvinna er komin á ringulreið:
Þetta friðarhjal ráðherra og fylgifiska hans var og að vísu aldrei annað en slagorð, til blekkingar við landsmenn.
Hér í landi var góður friður áður en ráðherra vakti upp uppkastadrauginn. En það er altítt út um heiminn, að valdafíknir menn beita fyrir sig þessum friðarelagorðum. Þegar t.d. einhver uppreisnarseggurinn í Mexíkó hefir brotist til valda með blóðugum styrjöldum, þá lætur hann það boð út ganga yfir borg og bý, að hann vilji fyrst af öllu tryggja frið á landinu, þ. e. a. s. hafa frið sjálfur, til þess að geta trygt vald sitt í næði og brotið andstæðingana á bak aftur.
Annar liður stefnuskrárinnar var: að efla traust landsins út á við og hjálpa þjóðinni á atvinnumálum. — Traustið erlendis sést bezt á lánskjörum. þeim sem ráðherra hafa boðist hjá gömlum skiftavini sínum, stóra norræna ritsímafélaginu. Félagið lánar féð á eiginhagsmuna skyni, til þess að fá auknar tekjur af sæsímanum, samkvæmt viðurkenning ráðherra sjálfs í gær, og trúir þó ekki landssjóði til þess að standa í skilum við sig, heldur krefst, að breytt sé ritsímalögunum og ákveðið í þeim, að tekjuafgangur símans skuli fyrst og fremst ganga upp í vexti og afborganir af þessu láni. Með þessu er ráðherra heimiluð veðsetning, laganýmælið er í raun réttri veðsetning, eins og sagt var í gær, og Íslendingar þar með settir á bekk með Tyrkjum og öðrum hálfviltum vanskilaþjóðum Austurlanda.
Þetta er nú aukna traustið erlendis! Varla verður heldur með sanni sagt, að ráðherra hafi lagt þungt á sig við atvinnumálin eða aukning velmegunar innanlands: Hann hefir komið með heilan hóp af lögum um að hækka laun embættismannanna í Reykjavík, og annan til þess að hækka skatta á þjóðinni. Það er alt sem eftir hann liggur þjóðinni til víðreianar! — En þingið hefir nú sem betur fer séð fyrir þessum frægu bjargráðum stjórnarinnar.
Þriðja og helzta verkefni stjórnarinnar var það, að »leiða sambandamálið til sæmilegra lykta«. Afrek ráðherra í því máli eru svo kunn, að ekki þarf að fara um þau mörgum orðum. Málið var hafið í fullkomnu óráði og skammsýni og þar með brotin öll loforð við kjósendur landsins frá síðustu kosningum. Hefði þó ráðherra átt að vera svo minnisstæðir viðburðirnir frá 1908 og 1909, er þjóðin hafnaði uppkastinu hans og sendi tuttugu og fimm þjóðkjörna menn á þing til þess að gefa honum vantraustsyfirlýsing, að hann sæi, að ekki mundi þýða að fitja upp á sama frumvarpinu látt breyttu, því að þjóðinni hefi alls ekki snúist hugur.
Sambandsflokkurinn »mikli« og ráðherra þóttust nú reyndar ætla að bera fram frekari kröfur. En hvað verður svo? — Ráðherra lætur Dani telja sig á að taka í mál að flytja Íslendingum enn verri, — eða að minsta kosti mun greinilegri — afarkosti og réttinda-afsal en 1908. Og þessu, inum svo nefnda »grút«, fylgir hann svo fast fram og »heldur að« flokksmönnum sínum, að hann kallar saman um hávetur það sem til næst í þrem landafjórðungum af þingflokksmönnum sínum á inn þjóðfræga flokksfund, »útbreiðslufundinn«, sem kostaður var af landssjóði.
Eg nefni að eins eitt dæmi af mörgum, hversu »grúturinn« var enn fráleitari en »uppkastið« 1908. Í athugasemdum uppkastains var tekið fram, að Íslandsmál yrði ekki borin upp á ríkisráði Dana, ef það yrði að lögum. Fyrir þessu gengust ekki allfáir gamlir Landvarnarmenn og snerust á sveif með uppkastinu. Nú er það tekið skýlaust fram í athugasemdum »grútsins«, að mál Íslands skuli eftir sem áður borin upp á ríkisráðinu !
Það þarf sannarlega æði mikla frekju og fífldirfsku til að bjóða þjóðinni annað eins og þetta. Vonin um framgang grútsins gat varla bygst á öðru en því, að þjóðin hefði felt frumvarpið 1908 af því að henni hefði þótt það of gott, og því væri nú þjóðráð að færa henni annað verra!
En þetta afrek ráðherra hefir fengið þann dauðadóm þjóðarinnar, að ekki nokkur einasts þingmálafundur tekur í mál að líta við þessum boðum ráðherrans, jafnvel ekki þingmálafundir hans eigin kjósenda, heldur skora jafnvel þeir á þingið að láta nú sambandsmálið afskiftalaust.
Verri útreið en þetta hefir ráðherra því ekki getað fengið í þessu máli: Smánarboð hjá Dönum, sem hafa verið fordæmd af íslendingum.
Engu einasta atriði af því sem ráðherra tók á stefnuskrá sína, hefir hann getað komið neitt áleiðis, heldur þvert á móti. Alt hefir snúist öfugt í höndum hans og horfir nú stórum mun verr, heldur en þegar hann slysaðist upp í valdasessinn.
Líta mætti og á stjórnarferilinn í samanburði við afstöðu núverandi ráðherra til fyrri stjórna; bera saman, hvað stjórninni og hennar flokki þótti þá svo mjög ámælisvert í fari þáverandi stjórnar, og hversu hún sjálf hefir breytt í sömu efnum síðan hún komst til valdanna.
Þetta væri eftirtektavert og lærdómsríkt, en hér er ekki tóm til þess.
Núverandi stjórnarflokkur dæmdi af arhart stjórn B. J. fyrir ófrið, glötun á lánstrausti, óhagkvæma samgöngusamninga, óheppilega framkomu í sambandamálinu. — En hefir þessari stjórn tekist betur?
Tvö minniháttar atvik ætla eg að nefna til dæmis.
Núverandi stjórnarfylgifiskar gerðu afarmikinn úlfaþyt út af »fjárlagabroti« B. J. í sambandi við »systursoninn«, sem hafði fengið nokkur hundruð krónur í viðbót við fjárveitingu til þess að rannsaka meðferð á síld erlendis. Hann hafði þurft að fara víðar, en í fyrstu var ráð fyrir gert og fekk uppbót fyrir það. — Mér er nær að halda, að ef grant væri skoðað, mundi mega sýna fram á, að þessi ráðherra hefir verið fult eina nærgöngull við fjárveitingarvaldið og fult eins strandrækinn utan fjárlaga, án þess brýn þjóðarþörf krefðist. Annað lítið dæmi:
Liðsmenn núv. ráðherra gerðu mikið uppþot út af því, að B. J. hefði tekiðallmargar myndir úr þinghúsinu, eign Málverkasafnsins, og flutt heim í ráðherrabústaðinn. Þetta var kallað mesta gerræði, beint «rán», og bent á, að málverkin væru í ótryggum stað, gæti brunnið eða glatast á annan hátt, og voru ásakanir þessar að mestu réttmætar.
En hvað hafa ráðherrarnir gert, þeir sem síðan hafa setið við völdin? Hafa þeir skilað »ráninu«? Ekki svo kunnugt sé. Það mun enn þá heima í ráðherrabústaðnum, ef það er ekki týnt.
Af þessum litlu dæmum sést bert, hver alvara hefir ráðið ásökunum stjórnarliðsins, hver siðferðisleg réttarmeðvitund hefir knúið fram áfellingar og dóma ráðherraflokkans.
Er ekki ráðherrahúsið jafneld fimt eins og það var 1909? Er ekki sama heimildarleysið til að geyma myndirnar þar nú eins og þá, og samur eignarréttur Málverkasafnsins?
Mér finst sjálfsagt, að þessar eignir sáu heimtar hingað aftur.
Ráðherra var ráðinn bankastjóri Íslandabanka áður en hann lét af völdum 1909. Hann hafði þótt nokkuð kaldur stundum í garð Landsbankans, en draga fram hagsmuni Íslandsbanka, svo að fylgismönnum hans þótti nóg um og skildu ekki þá, hvað valda mundi. Þetta tók blaðið »Þjóðólfur« skýrt fram vorið 1909, þegar opinbert varð, að ráðherra. var orðinn bankastjóri. — Síðan hefir ið sama brunnið við. Var það sök sér, þótt bankastjóri þessi drægi taum banka síns meðan hann var ekki beint við landsstjórnina riðinn. Verra nú, þegar hann er ráðherra, léður um stundarsakir úr bankanum. Er það mjög varúðarvert, að stjórn landsina sé svo návenzluð þessari einkastofnun, ekki sízt þar sem Landsbankinn er á aðra hönd. — Það er síður en svo, að það tryggi eftirlit með Íslandsbanka, að stjórnin er honum svona nákomin. Það er einmitt bankinn, sem fær stjórnina á þennan hátt, visvítandi eða óafvitandi, til þess að sjá í gegnum fingur Við sig, og alóvíst, hvort bankanum sjálfum er það til nokkurrar hollustu þegar öll kurfl koma til grafar.
Í 4. gr. reglugerðar bankans, frá 25. Nóv. 1903, er ákveðið, að hlutir hans skuli innborgaðir til fulla í reiðupeningum. Í bág við þetta kemur það, sem borið hefir verið á bankann opinberlega og staðið ómótmælt, að hann láni út á hlutabréf sín alt að 75%. Og þessi bréf hafa verið til sölu í bankanum til skamms tíma. — Ef einhver kaupir nú hlutabréf af bankanum og borgar þau með því að fá út á þau 75% og kannske víxillán fyrir afganginum, þá er þetta engin sala, og beint ofan í lög, þar sem bréfin áttu að seljast gegn reiðupeningum. Það er því nauðsynlegt að fá upplýsingar um, á hvern hátt bréfin eru seld, og hve mikið sé selt á þennan hátt.
Eitt skilyrðið fyrir seðla-útgáfurétti bankans var það, að hann lánaði fé til styrktar atvinnuvegum og verzlun Íslands. Þetta hefir hann ekki gert að því leyti, sem geysimikið af veltufénu, alt að einum þriðja, hefir lent hjá tveim útlendum gróðafélögum, sem að vísu starfa hér, en flytja arðinn út úr landinu. Þetta er því verra, þar sem þessi útlendu félög eru sögð ærið tæp, og tryggingin fyrir lánunum nokkuð hæpin. Sýnir þetta sig bezt á því, að hlutabréf bankans hafa fallið mjög í verði á þessu ári, jafnvel ofan í 85–86%. — Andersen bankaráðsmaður í Khöfn hefir kannast við það opinberlega, að þetta verðfall stafaði af skiftum bankans við þessi útlendu félög.
Það er brýn nauðsyn, að þingið gefi þessu gaum, því að ef bankinn fær verulegan skell, þá getur komið til landssjóðs kasta að greiða hluthöfum vegtina. Hann ábyrgist þeim, eins og menn vita, 4% samkvæmt bankalögunum 7. Júní 1902 (10. Nóv. 1905, 1. gr.).
Þá var ekki til þess ætlast í öndverðu, að bankinn færi með sparisjóðafé. Hann gerir það undir öðru nafni: Hvers vegna er honum ekki gert að skyldu að setja tryggingu fyrir sparisjóðsfénu, er hann tekur við undir innlánsfjár nafni ? Það er óhæft að hagur sparisjóðseigenda, »innláns-«manna, sé ekki fulltrygður.
Íslendingar eru vanir að líta svo á banka, að þeir séu eitt af því fasta og ófallvalta. En ekki hefir sú reyndin orðið á í öðrum löndum. Nýjasta dæmið er bankinn í Hróarskeldu. Hann var stofnaður 1906 og í miklu trausti. En nú kemur það úr kafinu að hann er kominn í slíkt öngþveiti sakir effirlitsleysis, að tapaðar eru 765 þús. króna!
Enn er eitt mjög athugavert nýmæli, sem stjórnin hefir tekið upp. — Hún ver fé opinberra sjóða, sem henni er trúað fyrir, til þess að kaupa hlutabréf Íslandabanka.
Árið 1911 var minningarsjóður gr. læknis Jónssonar allur settur í þessi bréf, 10,000 krónur. — Af Minnigarsjóði Herdísar og Ingileifar Benediktsen 1600 kr.; af Thorkillii-sjóði 2000 kr. - Inu sama var haldið áfram 1912.
Þetta er alveg óforsvaranleg meðferð, hreint og beint lagabrot. Sést það ótvírætt á því, meðal annars, að í lögum um stofnun Veðdeildar Landsbankana 12. Jan. 1900, 18. gr., er það heimilað, að verja megi fé ómyndugra manna og opinberra stofnana og sjóða til þess að kaupa skuldabréf veðdeildarinnar.
Úr því að lagaheimiid þarf til þessa, þegar um allra tryggustu bréf er að ræða, þá er sjálfsagt, að slíkt er alóleyfilegt um verðbréf einkastofnunar, sem ekki stendur á stöðugri grundvelli en svo, að bréf hennar falla annað kastið um 14–15 af hundraði.
Það er léttvæg afsökun, að hér sé ekki um stórfé að ræða. Ef það er ólöglegt á annað borð, þá skiftir mergðarmunurinn engu í því efni. Auk þess vill svo til, að keypt hefir verið fyrir alt, sem handbært bar í þessum sjóðum, og fyrir einn nýjan sjóð alveg, og hina eftir því sem hægt var. Verður því ekki efast um, að stjórnin hefði keypt þessi dýrindisbréf fyrir alt fé sjóðanna, ef hún hefði haft það handbært.
Þetta mundi engin landstjórn hafa leyft sér, nema sú er tekið hefði alveg sérstöku áatfóstri við þessa stofnun. Verður það fyrst skiljanlegt þegar þess er gætt að ráðherrann er nýskroppinn út úr bankastjórastöðu við þessa stofnun og hún bíður eftir honum, þegar hann kann að vilja setjast þangað aftur. Greiði kemur móti greiða, velvild móti velvild.
Alt þetta þykir mér bera vitni um — ef eg mætti svo að orði kveða hneykslanlega sambúð milli landstjórnarinnar og Íslandabanka !
Fyrst kastaði þó tólfunum í vor, þegar ráðherra sargaði út samþykki dönsku bankaráðsmannanna til þess að háyfirdómarinn yrði gerður undirbankastjóri til bráðabirgða, til þess að gæta sætis síns þangað til hann kemur sjálfur. Ráðherra segir þó sjálfur í athugas. við eitt stjórnarfrv., að ekki sé jafnnauðsynlegt um nokkra menn sem yfirdómendurna, að þeir sé lausir við annarleg störf, eins og satt er, en á sama tíma er hann að binda háyfirdómarann sjálfan við bankastjórastarf þessarar einkastofnunar.
Það var svo að orði kveðið í fyrra, að þingið hefði fengið bankalán í Íslandsbanka, er hann lánaði því einn bankastjóra sinn í ráðherrasessinn. Nú hefir þá ráðherra líklega verið að borga vextina af því bankaláni með því að leggja háyfirdómarann inn í bankann ! (Hlátur).
Annars er það skiljanlegt, að stjórnandi, sem veit fylgi sitt valt og brigðult, þykist koma ár sinni vel fyrir borð og treysta sig í sessi, með því að einstakir þingmenn eigi atvinnu sína undir því, að ráðherra hafi við völd — tapi henni jafnskjótt sem stjórnin veltur úr sessi!
Ást ráðherra á Íslandsbanka kemur heim Við það mikla ástfóstur, sem hann hefir tekið við aðrar ennþá útlendari gróðastofnanir: Sameinaðafélagið, Steinolíufélagið (D. D. P. A.) o. s. frv.
Eg fer ekki út í það, hversu ráðherra barðist móti því í þinginu í fyrra, að landið eignaðist strandferðaskip, sem þá buðust með beztu kjörum, en gerði síðan inn makalausa samgöngusamning við Sameinaðafélagið, sem skaðar landið minst 200,000 kr. á ári, eftir því sem vitrir og glöggir menn hafa komist næst við ítarlega rannsókn.
Ekki þarf eg heldur að fjölyrða um framkomu ráðherra í steinolíumálinu. Fiskifélag Íslands kvartaði í vetur þunglega undan stirðleik stjórnarinnar í því máli. Þá var eitthvað ljúfara samkomulagið við D. D. P. A., inn góða leigjanda og nágranna ráðherrana.
Þá er það óhagfelt og ámælisvert, hversu stjórnin hagar undirbúningi lagafrumvarpanna. Þjóð og þing fær ekki að vita, hvað á seyði er, fyrr en alþingi kemur saman. Landsmenn geta því ekki látið í ljós skoðun sína á málunum, allra sízt þegar stjórnin hefir í frammi aðra eins leynd um þau, sem nú er farin að tíðkast. Stjórnin gæti að minsta kosti látið blöð sín skýra frá aðalatriðum helztu laganýmæla, þótt henni þætti óviðfeldið að birta frv. áður en þau eru borin upp fyrir konungi. Og þegar búið er að bera þau upp, ætti ráðherra að sjálfsögðu að senda þau þingmönnum tafarlaust, svo að þau gæti ræðst á þingmálafundum. — En ráðh. vill auðsjáanlega enga samvinnu hafa milli stjórnar og þjóðar, heldur koma með nýmælin í opna skjöldu á þinginu.
Loks er að minnast á samvinnu stjórnar og þinga.
Þingið er á móti ráðherra í hans áhugamálum.
Launahækkunar-frumvörpin öll stráfeld, næstum á einu hljóði; skattafrumv. líka drepin hrönnum saman; framkoman í lotterímálinu talin mjög ámælisverð í rökstuddri dagskrá, sem reyndar var fullkomin vantraustsyfirlýsing, eins og háttv. þm. Borgf. tók fram. Mundi engin stjórn um viða veröld hafa setið eftir slíka útreið, án þess að krefjast traustsyfirlýsingar.
En hér er kaup kaups, því að ráðherra er einnig á móti þinginu og þess áhugamálum. — Hann er á móti því, að stjórnarskrármálið sé tekið fyrir. Hann vill enn vera að burðast með sambandsmálið, þvert ofan í þing og þjóð. Hann er á móti fánamálinu í hverri mynd sem er.
Stefnu-skrármálin: friðurinn, traustið á landinu, rétting atvinnumála, sambandsmálið — hafa gersamlega mishepnast.
Ráðherra er horfinn öllu fylgi. Alt hana ráð um opinber mál er í lausu lofti og á hverfanda hveli.
Það er að eins eitt atriði á hans órituðu stefnuskrá, sem stendur fast og óbifanlegt. Því hefir hann ekki brugðist, heldur fylgt með mikilli staðfestu, trúmensku og einlægum huga — það er: að sitja við völdin.
Stjórnin er hugsjónalaus, stefnulaus og fylgislaus, þegar frá er skilið þetta eina: að fara með völdin.
Á því altari er þessi stjórn að fórna þingræði Íslands, og þeir fáu menn, innan þings og utan, sem enn styðja hana að því óráði.