13.08.1913
Neðri deild: 33. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1029 í C-deild Alþingistíðinda. (832)
81. mál, bæjarstjórn í kaupstaðnum Reykjavík
Eg vil segja, að ekki sé þörf á að gera svo mikinn mun á launum föstu kennaranna og tímakennaranna:
Tímakennararnir hafa meira að gera en hinir, og eftir því sem eg þekki til, þá eru þeir venjulega betri kennarar en hinir, og er því engin ástæða til þess að svelta þá á meðan þeir eru ungir og láta þá fyrst fá viðunanleg laun þegar þeir eru orðnir gamlir og áhuginn á starfinu er orðinn lítill eða enginn, af því að þeir fengu ekki að njóta sín á meðan þeir voru ungir og áhugamiklir, heldur hlaðið á þá alt of mikilli vinnu eg það með sultarlaunum. En eg er þó þakklátur nefndinni fyrir það, að hún hefir þó stigið þetta spor, sem engin fjárlaganefnd hefir hingað til þorað að stiga, þó að sporið sé jafnvel ekki stigið nema til hálfs. Laun aukakennara, sem áður hefir verið svo mikið talað um, hafa aldrei komist eins hátt og nefndin nú leggur til.
Eg vil líka hrósa þeirri stefnu, sem fjárlaganefndin hefir tekið gagnvart gagnfræðaskólanum á Akureyri. Þar vill nefndin láta hækka þau launin, sem rétt er að hækka, og þó hún að einu leyti leggi til að lækka, þá er sú lækkun að eins ofan á. Nefndin leggur til að fjárveitingin, sem er áætluð til eldsneytis og ljósa, verði lækkuð um 200 kr, vegna þess að til standi að umgjörð (!!) verði sett utan um skólahúsið, og verður þá auðvitað hlýindi að henni.
Þá eru það unglingaskólarnir. Þar hefir nefndin tekið sér alveg ranga stefnu. Hún vill veita mestan styrk til þeirra unglingaskólanna, sem eru í fjölbygðustu kaupstöðunum. Það er rangt, því að þeir eru einmitt einu skólarnir, sem geta borið sig styrklaust. Eina athugasemdin, sem nefndin hefir gert við styrkveitinguna handa unglingaskólunum, er sú, að styrkurinn til skólans á Seyðisfirði sé gerður jafn og sá til skólans á Ísafirði. Eg get hvergi séð í nefndarálitinu, að nefndin hafi munað eftir þeim unglingaskólunum, sem alls ekki geta borið sig án styrks, unglingaskólunum í sveitunum. Nefndin heldur því þeirri sömu stefnu — ef stefnu skyldi kalla — sem fyrri fjárlaganefndir.
Þá vil eg minnast á þá stefnu, sem nefndin hefir tekið í málunum, sem eg kalla vísindi og listir. Ekki er eg nefndinni ósammála í því öllu. Ekki er stefnan þar alveg röng, en mjög er þar þó kallað frá þeirri réttu. Þar er um nokkra vísindamenn að ræða, sem nefndin leggur til að fái styrk. Vil eg skifta þessum mönnum í 2 flokka. Í öðrum flokknum eru þeir Guðm. Finnbogason, Helgi Jónsson og Helgi Péturss., og í hinum þeir Jón Ólafsson og Bogi Melsteð.
Nú vil eg fyrst líta á, hvernig nefndin fer með þessa síðustu. Jón Ólafsson á að fá 3000 kr. á ári til þess að halda áfram að semja íslenzka orðabók, sem eitt hefti er nú komið út af og allir menn geta séð, hvernig er. Bogi Melsteð á að fá 800 kr. á ári til þess að gefa út Íslendingasögu. Þar sem þessar styrkbeiðnar hans hefir áður verið synjað, þá verður maður helzt að skoða þessa fjárveitingu nú sem verðlaun fyrir bæklinginn, sem Bogi gaf út með Lilju. Var aðalefni þessa bæklings það, að reyna að sýna, að Íslendingar gætu ekki staðist án hjálpar Dana og sambands við þá. Fyrir þennan bandvitlausa bækling á nú að fara að veita verðlaun.
Þá vil eg minnast á hinn flokkinn, sem eg tel vísindamennina vera í. Þá er það fyrst Guðm. Finnbogason. Nefndin vill taka af honum þennan 600 kr. styrk, sem stjórnin ætlaði honum til útgáfu heimspekisrita, en í stað hans vill hún auka laun hana sem 1. bókavarðar við Landsbókasafnið með 500 kr. á ári. (Forseti: Eg vil leiða athygli þm. að því, að það er á móti þingsköpunum að fara út í einstakar greinar við 1. umr. frumv.). Já, já. En eg er líka rétt búinn. Nefndin leggur til að lækka vísindastyrkinn til þeirra nafnanna, Helga bróður míns og Helga Péturss. Er það líklega til þess, að gömul brjóstveiki Helga bróður míns geti tekið sig upp aftur og eins að gömul veiki, sem Helgi Péturss. er nýorðinn laus við, geti lifnað við aftur. En nú skal eg ekki þreyta lengur hæstv. forseta á athugasemdum mínum. Raunar hygg eg ekki, að eg hafi vikið mikið meir frá fjárlögunum en aðrir þingm. hafa gert í dag.
Eitt atriði vildi eg minnast á. Nefndin lætur það alveg liggja í þagnargildi, að stjórnin hefir ekki gert ráð fyrir neinum viðskifta.ráðunaut. Er það ekki rétt að leggja það embætti niður, og get eg ekki annað en vítt þá stefnu, sem fer í þá átt. Þetta embætti er einmitt það embættið, sem mest og bezt getur stuðlað að því, að verzlunarviðskiftin, sem hingað til hafa mest verið í höndum útlendinga, geti komist í Íslendinga eigin hendur. Landið á að taka andleg og veraldleg viðskifti við aðrar þjóðir í sínar hendur, að svo miklu leyti sem því er það unt. Þetta hafa menn séð og því hefir þetta embætti verið stofnað.
En hvers vegna vilja menn nú fara að afnema það ? Röksemdafærslan verður hér tvenna konar, ein hjá þeim, sem eru ánægðir með mig, og önnur hjá hinum, sem eru óánægðir með mig.
Þá tek eg þá fyrstu, sem eru ánægðir með mig. Þeim fanat sjálfsagt að þetta embætti væri stofnað. En ekkert hefir það komið fyrir síðan það var stofnað, sem gerir æskilegt að það verði afnumið nú.
Þá eru það hinir, sem álíta mig alveg óhæfan í þessa stöðu og vilja þess vegna afnema embættið. Þar er því til að svara, að hér er ekki um manninn að ræða, heldur stöðuna. Þó að maðurinn sé ónýtur, er embættið jafn-sjálfsagt fyrir því. Og hér er því hægt að fá annan mann í minn atað, því líklega hafa þó þessir menn þá trú á vinum sínum og fylgifiskum, að þeir treysti einhverjum þeirra til þess að gegna þessari stöðu með meiri dugnaði en eg hefi gert.
En svona er það alt af. Alt af verður eitthvað til þess að koma mönnum til þess að renna af hólmi. Fyrst rennir einn og svo hver af öðrum.
Vil eg nú hverfa frá þessu að sinni. Að eins vil eg segja það, að stefna fjárlaganefndarinnar í þessu máli er jafnvítaverð og stjórnarinnar.
Hvað þetta mál snertir sjálfan mig, þá býst eg ekki við að biðjast griða, hvorki hjá fjárlaganefnd né stjórn. Mun bezt fyrir mig að reyna að standa á mínum eigin fótum.
»Bað eg ei um brauð né frið,
bauð ei heldur neinum grið«.
Annað dæmi upp á stefnuleysi stjórnarinnar, er framkoma hennar í fánamálinu.
Frammi á lestrarsalnum liggja skjöl, sem skýra framkomu stjórnarinnar í fánamálinu 12. Júní. Vil eg nú koma með þessi skjöl inn í eldhús stjórnarinnar. Annars skal eg ekki deila á hana fyrir annað mál en þetta. Skal eg nú líta dálítið yfir þetta mál.
Eins og allir vita, Var það 12. Júni síðastliðinn, að sæmdarmaður, Einar nokkur Pétursson, Var rændur eign sinni af döndkum herforingja og var þessi eign hans íslenzki fáninn. Maðurinn leitaði aðstoðar stjórnarinnar til þess að ná rétti sínum. En í stað þess að veita honum nokkra aðstoð í því máli, gaf stjórnin út sérstaka fyrirskipun til lögreglustjóra og brýndi fyrir honum að gæta danska fánana hér.
En hvað gerði stjórnin til þess að hjálpa Einari til þess að ná aftur rétti sínum? Það stendur nú í þessu bréfi, sem — eg held hér á, og er frá stjórnarráðinu hér til stjórnarráðsins danska. Í bréfinu er skýrt allnákvæmlega frá málavöxtum, já, helzt til nákvæmlega, svo nákvæmlega, að manni getur dottið í hug, að stjórnin hér sé allra þegnsamlegast og auðmjúklegast að segja dönsku stjórninni frá þessu. Í bréfinu er sagt svo nákvæmlega frá þessu, að þar er skýrt frá, hvað gerst hafi hér á götunum, að 10 ára gamall drenghnokki hafi skorið á snúruna á stjórnarráðsflagginu, og svo fram eftir götunum. Stjórninni hefir kannske fundist ástæða til þess að skýra svona smásmuglega frá þessu vegna þess, að hún hefir ekki treyst því, að foringinn á Fálkanum myndi segja satt frá, en þá hefði hún átt að breyta orðalaginu þannig, að ekki liti bréfið út eina og skylduskýrsla.
Vil eg nú minnast dálítið nánara á innihald þessa bréfs. Mér er það sönn gleði, að háttv. 1. þm. Rvk. (L. H. B.) er gerður sá heiður, að hann er nefndur sem forgöngumaðurinn fyrir borgarafundinum, en það var ekki rétt, og bar enga nauðsyn til að kalla mig: »En tilfældig tilstedeværende Person«. Ummælin þessi um mig eru ekki fullkomlega hæversk, og betur hefði eg kunnað við það, að eg hefði verið nefndur mínu rétta nafni Stjórninni hefði verið það alveg óhætt, því eg hræðist í engu Dani. Og þótt ráðherra hafi gert þetta af hlífð við mig, þá hefði þó mátt velja önnur orð en þessi. En þetta vil eg ekki vera að vita lengur, að hér er svo skringilega til orða tekið. Undarlegt þykir mér það, að þurfa endilega að vera að segja frá því, að þegar Fálkinn sigldi héðan út af höfninni, að þá hafi danskur fáni verið dreginn að hún á stönginni á stjórnarráðsblettinum. Þessu hefði mátt sleppa. En hvað er það nú, sem stjórnin heimtar í þessu bréfi? Hún fer þess á leit við dönsku stjórnina, að hún skuli sjá svo um, að foringjar varðskipsins hagi sér eins og þeir hafi gert hingað til, foringjarnir á bátnum.
En þetta er alt of vægt. Stjórnin hefði átt að heimta það, að foringinn á skipinu yrði kallaður heim þegar í stað. Í slíkum viðskiftum þarf að beita sömu aðferðinni og þegar menn biðja um lán í banka. Þá verða menn að biðja um helmingi meira en þeir vilja fá, til þess að þeir fái það sem þeir vilja. Eins hefði stjórnin átt að gera. Þá hefði hún varla fengið eins auvirðilegt svar og raun varð á. Hérna stendur:
»Man skal henstille at Sagen, der ses at have vakt nogen Opsigt paa Island, forhandles med Islands Minister, naar Ministeren til Efteraaret kommer til Köbenhavn«.
Bæði bréfin eru sammála um það, að kalia þetta »en ubetydelig Affære«. Það er það kallað, þegar danskur herforingi rífur með valdi eignir af mönnum hér á höfninni.
Orðalagið á þessu danska bréfi er heldur ólíkt og á því íslenzka. Á þessum bréfum báðum er hægt að sjá, hvorir skoðaðir eru meiri máttar, Íslendingar eða. Danir. Í danska bréfinu er sagt, að málið getí vel beðið þangað til Íslandsráðherra komi niður í haust. En eitt er það, sem þeir flýta sér með að svara. Stjórninni hérna er sent þakkarávarp fyrir það, að hún hafi sent út bréf til varnar því »löggilta ríkisflaggi« —. hvaða ríkis? Er hér átt við Dannebrog í ríkinu Danmörku ?
Annars vil eg bæta einni lítilli athugasemd við þakkarávarpið. Eg held að lögreglustjóri þurfi ekki að vera eins þakklátur fyrir það, að verið er að áminna hann um að gera skyldu sína. Hér hefir ekkert gerst, sem geti gefið ástæðu til þess. Bæjarfógetinn hér í Rvík er mjög góður lögreglustjóri, sem óþarft er vera að áminna um að gera skyldu sína, þó að hann sé ekki einn af þeim yfirboðurum, sem alt af eru með vöndinn á lofti, en slá svo aldrei þegar á þarf að herða.
Löggilta ríkisflaggið! — svo eg minnist aftur á það. Það er löggilt í Danmörku. En hver segir að það sé löggilt hér ? Hvaða lög fyrirskipa það, að Dannebrog skuli blakta hér yfir byggingum? Engi. Það er sagt, að skip megi sigla undir þessum danska fána, en það er hvergi skipað. Og engin ákvæði eru um það, hvort við megum eða skulum flagga með þessum fána á húsum. Það er því alveg í lagaleysi að alþingishúsið og stjórnarráðshúsið dregur Dannebrog á stöng.
Þótt hægt væri að leiða þetta út af gömlum tilskipunum frá því fyrir 1814, þá eru þær ekki gildar og koma ekki Dönum Við, því að þær eru ekki útgefnar af Danakonungi, heldur af konungi Noregs og Íslanda. Þetta getur enginn véfengt, þegar rétt er litið á sögu sambands þessara landa. Það er enginn efi á því, að hér er um Noregskonung að ræða, eftir Gamla sáttmála og játningu Moltke greifa, þegar stórveldin vildu heimta það af Dönum, að þeir kúguðu Noreg. Þá var það svarið, að Noregur væri ekki og hefði aldrei verið hluti af ríki þeirra. Sama kemur fram í samningi frá 1570, um að takmörk Noregs og Svíþjóðar skyldu vera in sömu og verið hefðu. (»Takmörk milli beggja konungsríkja o. s. frv.). Og enn ið sama í friðarsamningi í Hróarskeldu 1658. (»Af því að ófriður var milli þessara þriggja ríkja, Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar«). Og enn 1751 (»Konungaríkið Svíþjóð skal heimta þá skatta, sem konungsríkið Noregur heimti fyr . . . en konungsríkið Noregur fær alla skatta « ). Með þessu er fullsannað, að Noregur hefir alla tíð verið sérstakt-konungsríki, og það getur enginn fundið, þótt leitað sé með loganda ljósi, að nokkur samningur hafi leyft Dönum eða konungi þeirra þennan rétt, sem Noregskonungar höfðu til þess að vera konungar yfir Íslandi eftir Gamla sáttmála. Þess vegna er ekki hægt að vitna í þessar tilskipanir til styrktar dönskum skilningi á fánamálinu. Réttur Danakonunga til þess að gefa slíkar tilskipanir, féll niður um leið og Noregur og Ísland gengu undan honum 1814. En maður, sem Bourke hét, tókst á hendur, að hnupla oss í Kílarfriðnum. Það væri ætlandi að Ísland ætti þá fulltrúa, þar sem eru ráðherrar vorir, sem héldu á málum þess og viðurkendu ekki, að vér séum réttlausir, heldur mótmæltu því með krafti að vér séum rændir skýlausum rétti vorum. Það ætti að vera regla, sem Magnús konungur berbeinn sagði forðum: »Konung skal til frægðar hafa en eigi til langlífis«.