13.08.1913
Neðri deild: 33. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1101 í C-deild Alþingistíðinda. (838)
81. mál, bæjarstjórn í kaupstaðnum Reykjavík
Guðmundur Eggerz:
Hæstv. ráðherra lét í ljósi, að margir hefðu í sumar verið hissa á ræðum mínum. Hvað sem þessu líður, þá er það víst, að þótt eg sé ungur þingmaður, talaði eg miklu þinglegar en hæstv. ráðherra, því 1/3 ræðu ráðherra í minn garð voru illyrði, 1/2 átti að vera lítilsvirðing, en afgangurinn var útúrsnúningur. Eg fullvissa hæstv. ráðherra um það, að lítilsvirðingarnar, sem hann viðhafði gegn mér, duga ekki mikið við mig. Eitt var það t. d., sem hæstv. ráðherra taldi mér til minkunar, og það var það að eg talaði fyrir kjósendur. Undarlegt að skoða það sem eitt ið versta meiðyrði, sem hægt sé að segja um þingmann, að hann haldi fram rétti og hagsmunum kjósenda sinna. Eg er kominn í þennan þingsal af því að kjósendur mínir hafa borið traust til mín. Á eg að svíkja það umboð og bregðast því trausti, sem þeir hafa sýnt mér með því að kjósa mig? Hvernig er hæstv. ráðherra kominn á þingið ? Er hann ekki kominn hingað af sömu ástæðu og eg, sem umboðsmaður kjósenda sinna. Og leitast hann ekki við að reka erindi þeirra á líkan hátt. Eða skoðar hann kjósendur sína kannske eins og »automat«, sem má opna með því að stinga í þá 5 aurum? Eg geri það ekki, hefi hvorki vilja eða getu til þess.
Eg vík enn að þessu, að eg hafi átt að vera að. tala fyrir kjósendur. En það hafa líka sumir þagað vegna kjósendanna. Það gerði hæstv. ráðh. þegar hann kom með »grútinn«. Eg veit að honum sárnar þetta orð, en eg er neyddur til að nota það, því annars skilst varla, hvað við er átt. Tilboð má ekki kalla það, það vantaði frá upphafi bæði nafn og faðerni, og það hygg eg að hafi verið vegna kjósendanna, af því að þetta hafði engan byr hjá þeim.
Eg sagði, að hæstv. ráðherra hefði snúið út úr, og það gerði hann líka í frekara lagi. Hann byrjaði á því, að hann hefði aldrei vitað til þess fyr, að talað væri um flokka eins og þeir hefðu nokkur áhrif hvers vegna stofnaði hann þá Sambandsflokkinn, sem auðvitað er nú pólitískt viðrini?
Það er ekki heldur rétt, að eg segði, að stjórnarfrumvörpin hefðu fallið af því einu, að þau komu frá hæstv. ráðh. Þvert á mót, eg sagði einmitt að þau hefðu v erið þess eðlis, að þjóðkjörnir fulltrúar gátu ekki fallist á þau. Hann sagði ennfremur, að margir hefðu hrist höfuðið yfir ræðum mínum hér í deildinni. En eg get sagt honum, að það hafa miklu fleiri hrist höfuðið yfir því, hve fast hann situr í ráðherrasætinu,
Eg var á móti launafrumv. af því meðal annars, að eg álit það ranglæti að hækka laun þeirra sem hæzt eru launaðir um 1500 kr., en þeirra sem lægra eru launaðir ekki nema um 600 kr., og þetta vilja kjósendur ekki.
Eg nenni ekki að vera að eltast við smámuni í ræðu hæstv. ráðherra, enda var eg rétt sofnaður undir henni síðast, en því held eg fram, og það gera fleiri, að hann sé að brjóta þingræðið.