13.08.1913
Neðri deild: 33. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1145 í C-deild Alþingistíðinda. (856)
81. mál, bæjarstjórn í kaupstaðnum Reykjavík
Matthías Ólafsson:
Eg ætla ekki að vera margorður út af ræðu háttv. 1. S.-Múl. (J. Ól.). Hann segir, að eg hafi farið með rangt mál og jafnvel að eg hafi gert það vísvitandi. Eg skal nú fyrirgefa honum það, því að honum eru þessi ósköp líklega ósjálfráð. Eg ímynda mér, að hann sé fyrir elli sakir farinn að sljóvgast. Eg ætla að eins að segja það, að eg hefði þolað það betur, að hann hefði brugðið mér um sljóleik, heldur en eg, hafi sagt víssvitandi ósatt. Eg þori óhræddur að bera það undir deildina og yfir höfuð undir alla þá sem okkur báða þekkja, hvorum þeir trúi betur.
Þá skal eg víkja að háttv. þm. N: Ísf. (Sk. Th.) nokkrum orðum. Hann sagði, að eg hefði talað af blindu flokksfylgi. O jæja, á nú að fara að bregða mér um flokksfylgi? Eg skammast mín raunar ekki fyrir að fylgja einum flokki öðrum fremur, þegar hann hefir rétt mál að verja.
Háttv, þm. N. Íaf. (Sk. Th.) mintist á lotterímálið og var þar að tala um glappaskot hjá ráðherra. En það er ekkert sannað ennþá, að ráðherra hefði getað fengið þessu máli framgengt, sem þingið glæptist til að samþykkja í fyrra, og svo, þótt ráðherra hefði fengið því framgengt, þá hefðu lögin ekki orðið að neinu gagni, af því að Danir hefðu altaf getað sett lög, er komið hefði í veg fyrir framkvæmd laganna, bannað framkvæmd þeirra.
Það hefir verið mikið um það talað, að stjórnin hafi komið svo seint fram með frumv. sín, að þjóðinni hefði ekki gefist koatur á að kynnast þeim. Það hefir engri stjórn hingað til tekist. Og hvera vegna á að heimta meira af stjórninni í þessu efni, heldur en af þingmönnum? Hvað veit þjóðin um það, þó að þingmaður sé að semja frumvörp á vökunni á löngu vetrarvöldunum? Hvað vissi þjóðin um lotterímálið? Hvernig er hægt að ætlast til þess af stjórninni í hverju einasta atriði, að hún fari undir eins að skýra mönnum frá því? Um mörg stjórnarfrumv. Vissu menn líka áður en á þing kom, eins og t. d. um launafrumvarpið. Hvernig fór annars um það mál? Það var svo sett nefnd í það. Hún hætti það ekki að neinu leyti, tók enga þá agnúa af því, sem hættulegastir voru til þess að verða því að falli. Og þó hún með sjálfri sér vissi, að margt í því var sanngjarnt og alveg sjálfsagt, þá neyddi hún þó deildina til þess að drepa það. Svona er samvizkusemin þessara manna. En það hjálegasta af þessu öllu er þó það, að sömu mennirnir, sem voru með í að drepa frumvarpið, tóku mikið af því upp í fjárlaganefndarfrumvarpið.
Það var verið að minnast á að ráðh. ætti að fara frá, væri meiri hl. Nd. á móti honum. Þá vil eg spyrja: Er nú þingið ekki orðið nema neðri deildin ein? Er engin efri deild til lengur? Er þetta ekki alveg frábær heimska? Í Ed. eru þó 8 þjóðkjörnir þingmenn vel gæti verið að þeir væru allir stjórnarmenn. Getur nokkrum heilvita manni dottið í hug, að þessir þingmenn megi engu ráða um það mál eins og hvert annað mál? Þeir eru þó kosnir með alveg sama rétti og þingmenn Nd. Hafa þeir ekkert að segja þegar um þingræði er að tala? Slíkri fjarstæðu og hér hefir verið haldið fram, er ekki einu sinni svarandi.
Eg vil ekki minnast frekara á launamálið, það var alt skorið niður rétt með röngu.. Það réttláta var drepið með því rangláta, og það sem allir vissu að var rétt, var drepið, bara til þess að hægt væri að skera það alt niður í sama trogið.
Háttv. þm. N.-Ísf. (Sk. Th.) mintist á fjáraukalögin og sagði, að þau ættu engin að véra til. En það er ekki rétt hjá honum. Eg hygg, að í landi þar sem þing er að eins haldið annaðhvort ár, sé alveg bráðnauðsynlegt að hafa fjáraukalög. Og með hverju ári eykst þörfin til að hafa þau. Hygg eg að erfitt yrði að fá nokkurn til þess að takast stjórnina á hendur ef fjáraukalögin væru ekki.
Háttv. sessunautur minn (Sk. Th.) mintist líka á fánamálið. Hingað til hefi eg ekki opnað munninn til þess að tala um það mál. En þá vil eg taka það fram nú, að það er rangnefni að kalla þessa bláhvítu veifu fána Íslendinga. Þessi fáni er ekki fáni Íslendinga, því hann hefir aldrei verið lögleiddur. Ef þetta fánafrumvarp kemst í gegn, þá er fyrst hægt að fara að tala um Íslandsfána. því hefði það ekki verið meira brot þótt Rothe, foringinn á Fálkanum,. hefði tekið vasaklútinn af Einari Péturssyni, heldur en flaggið. Brot Rothe er því ekki annað en það sem fara má með eins og hvert annað lögreglumál. Brot Rothe er því að eins það, að hann með valdi tekur af manni hlut, sem hann hefir ekki leyfi til að taka, en alls ekki brot á móti þjóðerni Íslendinga. Annað mál er það, að Rothe hefði kannske ekki gert þetta, hefði Einar Pétursson verið með vasaklút í staðinn fyrir þessa bláhvítu veifu. Þessi bláhvíti fáni er alveg réttlaus, nema Alþingi lögleiði hann, og naumast held eg að það verði gert vegna þess, hvernig hann er tilkominn. Þessi fáni er Íslendingum ekkert ástfólginn og verður það líklega aldrei og eg teldi það ílt að lögleiða fána, sem ekki yrði þjóðinni ástfólginnn. Eg er einlægur vinur fánamálsins, en eg er á móti þessari gerð á honum.
Það hefir verið fundið að framkomu ráðherra í þessu máli, að hann vildi aldrei fara fram á annað en það sem hægt sé að fá. Sá regla er auðvitað ekki góð, en er hin þá betri, að fara aldrei fram á neitt annað en það, sem menn vita að er ómögulegt að fá?
Menn halda því fram, að óviðkunnanlegt sé að hafa einn fána innan landhelgi og annan fyrir utan. Það er rétt. En er það þá ekki enn þá hjákátlegra að hafa 2 fána á sama skipinu, því það yrði að gera, þar sem við getum ekki veitt fánanum neina vernd. En það er algengt, að þegar varðskipið sér skip inni í landhelgi, þá væntir það þess, að skipið sýni ríkisfána sinn, svo að varðskipið geti séð, við hvern það á. Enn setjum nú t.d. að skipið sýndi þennan bláhvíta fána, gæti þá ekki foringjum varðskipsins dottið í hug að á skipinu væru t.d. Englendingar, sem hefðu afl sér þessarar dulu til þess að blekkja varðskipið?