14.08.1913
Neðri deild: 34. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1164 í C-deild Alþingistíðinda. (876)
21. mál, íslenskur sérfáni
Pétur Jónsson:
Eg tók það fram Við 1. umræðu, að mér væri eiginlega ekki sérstaklega ant um fánamálið. Eg benti á ástæður fyrir því, og þó að þær væru persónulegar að vísu, þá voru þær þó jafnframt að nokkru leyti almenns eðlis. Engu að síður hefi eg ekki lagt atkvæði mitt til hindrunar því, að það kæmist til 2. og 3. umræðu. Eg leit svo á, að rétt væri, að málið fengi fulla meðferð í deildinni úr því að það var en einu sinni fram komið. Eg bjóst satt að segja við því, að þeim, er mestan áhuga hafa á þessu máli, gæti komið saman um frumvarpið, svo að fult samræmi væri fengið á milli þeirra, er málið færi út úr deildinni, og þá mundu þeir sætta sig við að það færi ekki lengra að svo stöddu.
Eg býst nú við, að málið gangi áfram út úr deildinni og hefi heldur ekki reynt að hindra það; hins vegar get eg ekki léð því mítt atkvæði fyrir það, sér í lagi, að þeir menn, sem mestan áhuga hafa á málinu, eru algerlega sundurþykkir sín á milli, svo að það sem einn vili, þykir hinum fjarstæða. Þeir sem endilega vilja fá siglingafána, telja löggildan heimafána verri en ekki neitt. Þeir sem hafa áhuga á að fá löggildan heimafána, vilja ekki fara fram á siglingafána, af því það er ekki á okkar valdi að fá hann. Jafnvel þó að eg geti ekki fylgst með þessum áhugamtímum í þessu máli, verð eg að álíta rétt að taka tillit til hreyfingarinnar eins og hún hefir verið frá upphafi og fara nú ekki að löggilda þann fána, sem upphafsmennirnir eru óánægðir með.
Þá eru margir óánægðir með gerð fánans. Eg get fyrir mitt leyti sætt mig við þessa gerð, enda býst eg við, að með henni fengjust flest atkvæði, ef til almennrar atkvæðagreiðslu kæmi. En atkvæðagreiðslan mundi eflaust fá enn betri úrslit, ef málið fengi að bíða enn um sinn, og fáninn yrði notaður lengur án löggildingar, eins og verið hefir. Eg viðurkenni það líka, sem hæstv. ráðherra hefir tekið fram, að ekki er nógu nákvæmlega tiltekið í frumvarpinu, hvar þennan fána megi nota, og hvaða rétt hann hefir eða hvaða skyldur menn hafa gagnvart honum. Breyt.till háttv. þm. Dal. (B. J.) í þá átt að ákveða það, er þó ekki þannig háttað, að eg geti greitt henni atkvæði. Eg býst nú við að mér verði brugðið um ráðherrafylgi í þessu máli, og verð eg að sætta mig við það, enda þykir mér engin skömm að því að taka tillit til þess er sá maður segir, sem allan veg og vanda á að hafa af því, að fá málinu framgengt. Mér finst það ekki taka tali, að þröngva því upp á ráðherra, ef hann álítur það þannig úr garði gert, að hann geti með engu móti flutt það. Bezt teldi eg, að málinu væri vísað til aðgerða stjórnarinnar, gæti það þá fengið ýmsan þann undirbúning, sem nú er ófenginn, Eg geri það ekki að tillögu minni, en málinu greiði eg ekki atkvæði lengur að svo búnu.