14.08.1913
Neðri deild: 34. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1166 í C-deild Alþingistíðinda. (877)

21. mál, íslenskur sérfáni

Jóhannes Jóhannesson:

Háttv. frams m. (L. H. B.) sagði, að eg væri óánægður með gerð fánana og vildi fá henni breytt. Það er rétt, að eg álít það galla á frumvarpinu, að gerð fánans skuli vera óákveðin í því, en eg tel það ekkert aðalatriði. Það tel eg aftur á móti aðalatriði, að þetta frumv. fullnægir hvorki óskum né kröfum nokkurs manns, sem snortinn hefir orðið að fánahreyfingunni. Háttv. sama þm. þótti líka undarlegt, að eg skyldi ekki óttast, að það sem gerðist hér 12. Júní kæmi fyrir aftur. Eg skil bréf forsætisráðherrans danska svo, að — hann álíti að þetta hefði ekki átt að koma fyrir, og þar sem hann gengur inn á að ræða það við ráðherra Íslands, hvaða ákúrur foringi varðskipsins eigi að fá, þá sýnir það ljóslega, hvaða augum Danastjórn lítur á málið, og í því felst viðurkenning fyrir því að foringjanum hefir yfirsést. Eg þori þess vegna óhræddur að fullyrða, að þetta komi aldrei fyrir aftur. Eins og eg tók fram, hefir bláhvíti fáninn aldrei verið samþyktur, hvorki af þjóð né þingi. Þjóðinni var því engin vanvirða sýnd 12. Júní, og þess vegna er engrar uppreisnar þörf. Eg er á því, að alt of mikið hafi verið gert úr þessum atburði, því að í raun og veru var það ekkert annað, en að einn danskur embættismaður misskildi stöðu sína í einu atriði og hljóp þess vegna á sig. Það er því engin ástæða fyrir löggjafarvaldið að hlaupa upp til handa og fóta út af þeim smámunum.