14.08.1913
Neðri deild: 34. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1183 í C-deild Alþingistíðinda. (887)
68. mál, bygging, ábúð og úttekt jarða
Framsögum. minni hl. (Bjarni Jónsson):
Það er satt, að vér höfum enn ekki reynt, hvernig bezt sé að gera hús. En þúsund ára reynsla er þó nokkurs verð, og hún er sú, að mönnum liður sæmilega í vel gerðum torfbæjum.
Mér skilst, að meiri hluti nefndarinnar haldi, að það sé ætlun mín, að þegar í stað skuli vera farið að endurbæta húsakynni hér á landi. En svo er ekki. Hér er um það eitt að ræða, að fyrningin lendi á eigendunum, en ekki á leiguliðum, en enga skyldu til húsgerðar fyr en þar að kemur.
Um kostnaðinn er það að segja, að hann er samur, hvort sem eigandi eða leiguliði gerir húsin. Hann er kominn undir því einu, hversu dýrt efni er valið, t. d. steinn; það er þá hentugra, að jarðeigandi beri kostnaðinn, heldur en leiguliði, sem ekki getur flutt steinhúsið og á ef til vill örðugt með sölu þess. Með þeim hætti sem nú er, getur ekki verið að ræða um annað en lélegar skemmur, þar sem lífi og heilsu fátæklinganna er hætta búin.
Það er satt, að þörf er á leiðbeiningum í húsagerð upp til sveita. Nú vill svo vel til, að fyrir þinginu liggur umsókn frá manni, sem numið hefir húsagerð í Noregi og steinsteypu að auki, ef svo mætti reynast hentara hér á landi. Er sá maður inn efnilegasti, hefir brotist áfram af eigin ramleik, við ágætt lof frá skólum þeim, sem hann hefir verið í. Eg veit ekki, hvort fjárlagalefndin hefir sint þessu, annað hvort beint eða þá hugsað sér, að styrkur til þessa manns fælist í fjárveitingunui til búnaðarfélagsins. Ef svo er ekki, er ekki annað fyrir en að þingmenn beri upp tillögu um þetta, og mætti þá gera ráð fyrir því, að háttv. 1. þm. Skagf. (Ó. Br.) gerðist þar flytjandi að.
Eigandi og leiguliði — þurfa jafnt leiðbeiningarinnar við. Þeir leggja báðir nákvæmlega í sömu hættu og í sama kostnað. En að leita til sveitarstjórna og sýslunefnda um þetta, er ekki til annars en að tefja fyrir málinu. Þær hafa engu meiri kunnáttu á þessum hlutum en sjálfir þeir, og geta þess vegna ekkert sagt nema það, sem hver maður getur sagt sér sjálfur. Það þarf ekki að leita til neins um það, hvort réttara sé að eigandi beri ábyrgð á eign sinni eða leiguliði. Það liggur í augum uppi.
Háttv. framsögum. meiri hlutans (Ó.Br:) sagði; að það gæti í einstökum tilfellum verið réttara, að maður legði fram fé til að bæta skemdir á bæjarhúsum, og það væri þegar hann byggi við lágan leigumála. En þessi jöfnuður þarf aldrei að koma til. Landadrottinn getur hækkað landskuldina í staðinn fyrir þessar kvaðir; sem á hann leggjast. Og þá fyrst er rétturinn fenginn, er hver maður ber ábyrgð á eign sinni.
Þetta snertir einnig rétt mat á landinu og lánatraust þess: Það er ekki sama, þegar jörð er metin til dýrleika og farið er eftir landskuldinni, hvort hún er í réttu samræmi við landið og landgæðin eða hún er fólgin í einhverjum kvöðum; sem. engum dettur í hug aðameta, en eru: þó til. Sú áhætta, að mega alt af búast við því að þurfa að reisa hús af nýju, ef slys vildi til, sem alt af getur komið fyrir, er ekki reiknuð til peninga. Það eru miklar tekjur fyrir eigandann, að losna við þá ábyrgð. En ef hún hvíldi á honum, sem sanngjarnt en þá yrði hann að hækka afgjaldið, en við það yrðu kjör leiguliða ekkert verri. Með þessu: móti yrði komist nær sannvirði landsins og á því er engin vanþörf. Matið á landinu er svo hlægilegt, að það er ekki talið meira virði en sem svarar andvirði afurðanna á einu ári. Og þegar maður ætlar að taka lán út á jörð, þá segir hann að hún sé svo og svo stór, en kosti ekki meir en þetta.
Að svo mæltu læt ég útrætt um málið. Eg áfelli ekki varfærni meiri hlutans, en ég spái, að þegar málið kemur næst fyrir Alþingi, þá verði það jafnvel undirbúið