14.08.1913
Neðri deild: 34. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1189 í C-deild Alþingistíðinda. (889)

68. mál, bygging, ábúð og úttekt jarða

Sigurður Sigurðsson:

Eg hefi skrifað undir nefndarálit meiri hlutans með fyrirvara, og vil eg að eins í stuttu máli gera grein fyrir, hvers vegna eg gerði það.

Fyrst skal eg geta þess, að mér er sárt um 1. gr. eins og hún er, og gat þess vegna ekki verið nefndinni sammála um að fella hana burt, jafnvel þó að eg gerði það ekki að ágreiningsatriði. Eg kannast við, að það er yfir höfuð erfitt að semja lög um samband landsdrottins og leiguliða. Það sem einna mest er talið leiguábúðinni til ókosts, er það, hvað ábúðartiminn er takmarkaður og jafnvel óviss, ef vanrækt er að setja fasta skilmála. Jarðeigendur vilja oft af ýmsum ástæðum komast hjá því að byggja jarðir sínar til langs tíma í einu. Stundum er það eðlilegt, ef þeir búast við að þeir sjálfir eða skyldulið þeirra taki við jörðinni. En stundum er það einungis — af því, að þeir hugsa sér að geta við annað tækifæri komist að hærri leigumála. Þeir vilja því hafa vaðið fyrir neðan sig og byggja jarðirnar til sem styzts tíma, eða með því skilorði, að leiguliðarnir verði að fara þegar þeir vilji vera láta. Með þetta fyrir augum setti eg þetta ákvæði í 1. gr., að aldrei mætti byggja jörð til skemri tíma en 10 ára. Háttv. þm. N.-Ísf. (Sk. Th.) fer fram á það í þingsályktunartill. sinni, að allar jarðir séu bygðar ævilangt, en þeir sem telja 10 ár of hörð skilyrði, geta þá líklega ekki frekar felt sig við það. Þegar ræðir um þetta mál, er það annars alt af inst í huga mínum, að hér ætti alls ekki að vera um neinar leiguliðaábúðir að ræða, heldur ættu allar jarðir hér á landi að vera annaðhvort landssjóða eign eða þá í sjálfsábúð. En þessu takmarki verður eflaust erfitt að ná, hvor leiðin sem farin er.

Þá get eg ekki verið meiri hluta nefndarinuar sammála um að fella burt 4. og 5. gr. Minni hlutinn, háttv. þm. Dal. (B. J.), hefir gert breyt.till. við þær greinar, sem hann að líkindum hefir gert sér von um að eg gæti aðhylzt. En eg verð að segja, að breytingar hans hafa ekki bætt efnið, þó að mér sé sennilega skylt að viðurkenna, að orðalagið er betra, enda er það kunnugt, hversu orðhagur sá maður er. En þó að eg viðurkenni, að hann hafi klætt greinarnar í betri búning, get eg ekki fallist á þær að efni til. Hann (B. J.) sagði, að 4. og 5. gr. hefðu verið steindrepnar af meiri hluta nefndarinnar. Þetta er ekki rétt af þeirri ástæðu, að nefndin viðurkendi, að stefnan sem í greinunum felst, væri rétt. Þar að auki á það eftir að koma undir úrskurð deildarinnar, að minsta kosti ef tillögur minni hlutana verða feldar.

Háttv. þm. S. Þing. (P. J.) hafði ýmislegt að athuga við 4. og 5. gr. Mér þótti það undarlegt, því að eg man ekki betur en að þær eigi einmitt rót sína að rekja til hans frá þinginu 1909. Hann átti sæti í landbúnarnefndinni, sem þá var skipuð, og samdi hann þá þessar greinar, ef eg man rétt. Um athugasemdirnar við það, að leiguliði sé skyldur að halda jarðarhúsum við, svo að þau rýrni ekki að öðru en fyrningu, má geta þess, að því mætti breyta til 3. umræðu. Í greininni er reyndar ekki gert ráð fyrir því, að svo skuli endilega vera, heldur er það gert að gert að samningsatriði milli landsdrottins og leiguliða.

Um það, hvort hentugt sé að fyrirskipa með lögum, hve mikið af húsum skuli fylgja jörðunum, og að jarðeig: andi sé skyldur til að byggja upp á þeim jörðum, þar sem húsin álítast ekki nægileg, geta verið mjög skiftar skoðanir. Stefnan er sú, að jarðeigendurnir eigi húsin á jörðum sínum.

Ástandið hér sunnanlands, t. d. austan fjalls, er það, að jarðarábúendurnir eiga flest húsin, að minsta kosti þar, sem þau eru sæmilega góð. En þetta er að eins tímaspursmál. Þegar ábúendaskifti verða, kemst það smátt og smátt á, að húsin verða eign jarðeigandans. Þessu er líka svo háttað alstaðar í útlöndum, þar er sami eigandinn að húsunum og jörðunum, og hann leigir sloan hvort tveggja. Eg tel víst, að þó að ýmislegt kunni að vera athugavert við þetta, þá verði þetta framtíðarstefnan hér á landi.

Að svo mæltu skal eg ekki segja meira, en greiði atkvæði samkvæmt þessu, er eg hefi nú sagt.