14.08.1913
Neðri deild: 34. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1193 í C-deild Alþingistíðinda. (892)
80. mál, gjafasjóður Jóns Sigurðssonar
Framsögum. minni hl. (Guðm. Eggerz):
Eg hefi þegar gert grein fyrir skoðun minni á. þessu máli í nefndarálitinu. Eins og það ber með sér, tel eg það ekki rétt, að breyta síðasta, vilja manna án þess að brýn nauðsyn krefji. Og eg sé ekki, að slík nauðsyn sé fyrir hendi.
Tilætlun meiri hl. nefndarinnar er sú, að tryggja það, að ætið séu til nægar kornbirgðir í. Eyjafj.sýslu. Eg hefi grenslast eftir því hjá nefndarmönnunum, hvernig þeir hugsuðu sér að framkvæma þetta, og skildist mér þá sem tvo vegi mætti fara. Önnur leiðin er sú, að nefndin ætlast til að keyptar séu árlega 1200 tunnur af korni, og skal þær geyma á ákveðnum stað þann tíma ára sem íshætta er. Það vita nú allir, að ekki er hægt að geyma korn í fleiri tugi ára, og er því meining nefndarinnar, að því er mér virtist, að selja kornið aftur. Með þessu móti er sjóðurinn gerður að verzlunarfyrirtæki, og þá sjá allir, að svo gæti farið, ef korn lækkaði í verði, að sjóðurinn tapaði miklu fé, þó að hann á hinn bóginn gæti líka grætt, ef það stígur í verði. En eg get alls ekki felt mig við það, að svona sjóðir séu gerðir að verzlunarfyrirtæki. Þá er hin leiðin sú, að fá einhvern kaupmann til að hafa alt af fyrirliggjandi 1200 tunnur af korni, og greiða honum árlega 75 aura fyrir hverja tunnu. Það yrðu þá 900, kr. á ári, sem eyddust þannig af vöxtum sjóðsins. En eg sé ekki, hver trygging er fyrir því að kaupmaðurinn hafi í raun og veru 1200 tunnur af korni fyrirliggjandi, þó að honum sé lofað 75 aurum fyrir hverja tunnu, en hitt get eg skilið, að kaupmaðurinn vildi gjarnan fá þessar tekjur. Það er aðallega vegna þessa atriðis, sem eg er á móti frumv. Eins og eg hefi áður getið, stríðir það að nokkru leyti á móti siðasta vilja gefandans. Mér finst það ekki vera rétt, að skerða sjóðinn á þennan hátt, heldur ætti að láta vextina leggjast við hann þangað til hann væri orðinn t. d. 200. 000 kr. eða svo, og fara þá fyrst að tala um, hvað gera skuli við vextina.