14.08.1913
Neðri deild: 34. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1204 í C-deild Alþingistíðinda. (903)

104. mál, heimild fyrir veðdeild Landsbankans að gefa út (serie) bankavaxtabréfa

Framsögum. (Björn Kristjánsson):

Eg skal ekki svara miklu til þessa. En þó vil eg segja það að eg held að allir hljóti að sjá, að það, sem eftir er af 3. veðdeild endist ekki lengi, einkum þar sem 100 þús. kr. af því eru nú þegar lofaðar. Þess vegna er ekki nema um tvent að gera, annaðhvort að bankinn hætti við öll veðdeildarlán, eða þá að stofna nýja veðdeild og reyna að útvega markað erlendis fyrir bréf hennar. Þetta hefir bankastjórnin viljað benda þinginu á, en það ræður því, hvort heldur gert verður.

Háttv. þm. S-Þing. (P. J.) átti bágt með að fella sig við þá breytingu nefndarinnar, að landasjóður leggi til þessar 25 þús. kr. samtals í 5 ár. Hann hefir þó sennilega sjálfur greitt atkv. með sama styrk til 1. veðdeildar árið 1900, og var upphæð hennar þ6 ekki nema i200 þús. kr., en hér er gjört ráð fyrir 6 milíónum kr., og má þá nærri geta, hvort hér er langt farið. Það er ekki til neins að gera ekki annað en setja veðdeildina á stofn að nafninu til og halda því svo fram, að landssjóður eigi engu til að kosta. Það á þá betur við að fella frumvarpið og hætta að taka lán erlendis.

Þá álítur háttv. þm. samábyrgð varhugaverða. Það getur nú verið, að mönnum, sem fá lán út á jarðir, þyki hart að vera í samábyrgð með þeim sem lán fá út á hús í kaupstöðum. En eftirspurnin eftir lánum er svo mikil, að það er jafnvel ekkert á móti því, þótt þau séu gerð nokkuð óaðgengilegri. Og ef þessu ákvæði er slept, hvað kemur þá í staðinn? Eitthvað verður það að vera, og það verður auðvitað ekki annað; en að hafa 1/6 hluta fjárins fastan í verðbréfum. Og hver á að leggja til þau verðbréf ? Jú, landsjóður auðvitað. Þessu vildum við einmitt komast hjá, enda er þetta ákvæði í samræmi við gildandi ákvæði í lögum um lánsdeild Fiskveiðasjóðsins, og hana samþykti þó þingið víst mótmælalítið. Háttv. þm. sagði, að þetta væri ekki regla í bönkum, en í lánafélögum. Eg veit nú ekki, hvað eg á að kalla veðdeildina. Eg held, að hún sé ekki annað en nokkurs konar lánsfélag, félagsskapur til þess, að útvega lánsþurfandi veðhöfum í landinu peninga. Banki getur hún ekki heitið. — Að greiða atkvæði móti 3. gr. er sama sem að fella frumv. En hv. þm. getur auðvitað komið með breyt.till. við 3. umr., ef hann finnur einhverja aðra leið, sem er jafntrygg og þetta. Geti hann það ekki, þá er alt ónýtt, og þá er eins gott að fella frumv., og vera ekki að basla neitt við umhyggju fyrir almenningi, sem virðist svo illa séð.