14.08.1913
Neðri deild: 34. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1207 í C-deild Alþingistíðinda. (908)
107. mál, sérstök dómþinghá í Öxnadalshreppi
Flutningsm. (Stefán Stefánsson):
Mér hefir nýlega verið sent erindi um það frá kjósendum mínum, að fá Öxnadalshrepp gerðan að sérstakri dómþinghá. Undir beiðnina hafa skrifað 50 kjósendur í hreppnum, og er ástæðan Sú, að hreppurinn er nýlega aðskilinn frá Skriðuhreppi, og hafa hreppsbúar því bygt fundahús að Þverá, sem er í miðjum hreppnum, og óska að hafa þingstað sinn þar framvegis.
Eg sé nú ekki að neitt verulegt geti verið á móti þessu, miklu fremur í alla staði eðlilegt, að innan hreppsins sé þinghús, er bæði verði notað fyrir manntalsþinghald, og menn geti þar rekið réttar síns í einstökum málum, er fyrir kunna að koma innan sveitarinnar, enda erfitt fyrir hreppsbúa að verða að sækja manntalsþing í þann hrepp, sem búið er að aðskilja, eingöngu vegna legu sveitarinnar og þar af leiðandi erfiðleika að sækja sameiginlega fundi. Nú er það svo, að Öxndælir þurfa að greiða sérstakt gjald til viðhalda þinghúsi í Skriðuhreppi, þar sem þeir þó eiga innan hreppsins, og það á mjög hentugum stað, jafnvel betra hús til allra fundahalda. Þetta er sjáanlega svo óeðlilegt, að eg hygg að allir viðurkenni kröfu Öxndæla í fylsta máta réttmæta.
Eg skal svo ekki fara fleiri orðum um þetta mál, en vona, að það gangi óáreitt gegnum háttv. deild.