15.08.1913
Neðri deild: 35. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1221 í C-deild Alþingistíðinda. (920)

30. mál, leynilegar kosningar til bæjarstjórnar í kaupstöðum

Framsögum. minni hl. (Bjarni Jónsson):

Það sem hæstv. ráðherra sagði, var styttra en það sem frams.m. vildi segja. Jón Ólafsson: En hvað sagði eg?). Hann er að dreyma háttv. þingmanninn. Hann er nývaknaður.

Hæstv. ráðherra hélt því fram, að þetta kæmi ekki í bág við anda laganna. Það kemur þó að minsta kosti í bág við þær umbætur, sem hann vill láta gera á lögunum, og gerir umbæturnar að skemdum. Þetta hefi eg ljóslega sýnt fram á. Það getur hver heilvita maður séð, að röðin, eins og hún var á listanum eftir kosningu fylgismanna hans, getur skekst og maður sem neðar var settur á listann, getur fluzt upp fyrir þá sem ofar voru settir. Þetta kemur í bág við anda laganna. Það er rangt, að flokkurinn missi betri manninn fyrir þetta; því það vita allir, að betra er betra en gott, o.s.frv. (Jón Ólafsson: Hvers vegna voru ekki allir góðir á listanum?). Af því að ekki eru allir úlfar auðþektir þegar þeir hafa yfir sér sauðargæru.