15.08.1913
Neðri deild: 35. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1224 í C-deild Alþingistíðinda. (927)

30. mál, leynilegar kosningar til bæjarstjórnar í kaupstöðum

Framsögum. minni hl. (Bjarni Jónsson):

Með þessu fyrirkomulagi ætti þá kjörstjórnin að bíða meðan flokkarnir væru að halda fundi og rífast um hverjir skyldu vera á þessum lista og hverjir á hinum. Allir sjá, hve gott fyrirkomulag það er. Vill annars ekki háttv. þingm. spara sína vizku þangað til hann er beðinn um hana.